Er hann risi? myndir

Zetan fylgist nú ekki mikið með körfubolta, en rakst á myndir af körfuboltakappanum Shaquille O’Neal, sem margir þekkja úr NBA. Shagquille er ríflega 2.1 meter á hæð og því ekkert mikið stærri en margir kollegar hans. Að horfa á hann eða aðra kappa í körfubolta, er því eflaust eitthvað sem margir spá ekkert sérstaklega í, þ.e. með tilliti til hæðar.

En að sjá svona hávaxinn mann með öðru fólki, er allt annað mál. Hér eru til dæmis nokkrar myndir af Shagquille sem undirstrika hversu hávaxið fólk er, sem nær yfir 2 metra. Í tilfelli Shagquille, erum við líka að tala um mann sem er um 150 kíló á þyngd.

Með leikurum sem við þekkjum.

\"\"

\"\"

Með pólitíkusum.

\"\"

Í vinnunni.

\"\"

\"\"

Í sjónvarpi og/eða fréttum.

\"\"

\"\"

\"\"

Með kærustunni.

\"\"

Til samanburðar má nefna að hæsti Íslendingurinn, Jóhann risi, var enn stærri en Shagquille. Hann var 2,34 metrar á hæð og um 163 kíló. Samkvæmt Vísindavefnum, var hæsti maður í heimi Wang Fengjun frá Kína, en hann var rúmlega 2,5 metrar á hæð. Samkvæmt vefsíðunni Tallest Man, er Íslandsvinurinn Sultan Kosen frá Tyrklandi, hæsti maður heims í dag, hæð: 251.4 cm.

Sú síða segir að hæsti maður sem vitað er um, hafi hins vegar verið enn hærri. Það hafi þá verið Robert Pershing Wadlow, sem lést árið 1940. Hann var 272 sm og vóg um 220 kíló. Robert sjáið þið á þessari mynd, en þar fyrir neðan má sjá hæstu konu í heimi. Hún hét Zeng Jinlian og lést aðeins 17 ára gömul. Zeng var 248.3 sm á hæð og gat ekki staðið upprétt.

\"\"

\"\"

Í samanburði við þetta fólk, er Shaquille því nánast bara peð!

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Atvinnulífið, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"
Zetan er í eigu 
Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!