Segist ekki samkynhneigð, gagnkynhneigð né tvíkynhneigð

Lily-Rose Depp er 16 ára gömul fyrirsæta, leikkona og dóttir leikarans Johnny Depp. Hún birti stöðufærslu á samfélagsmiðlum í fyrra, sem gerði það að verkum að margir hafa talið hana samkynhneigða.

En Lily-Rose segir að það sé alls ekkert málið.

Það sem hún hafi verið að meina, er að kynhneigð er fyrir hana eitthvað sem skiptir ekki máli. Fólk getur verið svona og hinsegin og þarf ekkert að skilgreina sig sem eitt eða neitt.

Þannig segir hún að stöðufærslan sín á Instagram í fyrra, hafi strax verið túlkuð sem svo að hún væri samkynhneigð. Við tímaritið Nylon sagði hún aftur á móti: 

,,Ég birti þessa stöðufærslu fyrst og fremst til að benda á að fólk þarf ekkert að skilgreina kynhneigð sína eitthvað sérstaklega. Margir krakkar í dag eru ekki að því og finnst bara töff að gera það ekki.”

Í grein Huffingtonpost, kemur fram að samkvæmt nýjum rannsóknum, þá er þetta staðreynd. Þannig voru birtar niðurstöður könnunar í ágúst árið 2015, þar sem um þriðjungur ungs fólks í Bandaríkjunum, skilgreindi sig sem eitthvað annað en gagnkynhneigt fólk. Þetta er mjög ólíkt niðurstöðum kannana þar sem eldri kynslóðir eru spurðar um það sama. Þar skilgreina 86% fólks sig sem gagnkynhneigð. Í öðrum umfjöllunum Huffingtonpost, eru hins vegar kenningar um að sú einfalda skilgreining sem við þekkjum í dag, þar sem flestir skilgreina sig sem gagnkynhneigt fólk, sé eitthvað sem muni heyra sögunni til hjá komandi kynslóðum. 

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!