Eos varasalvarnir stórhættulegir? búið að höfða mál gegn fyrirtækinu

 

\"\"EOS varasalvarnir hafa slegið í gegn um allan heim og meðal annars verið mjög vinsælir á Íslandi síðastliðin ár. Varasalvarnir eru til í nokkrum mismunandi litum, með mismunandi bragð- og lyktartegundum. Stjörnur eins og Kim Kardashian, Miley Cyrus og Jennifer Lopes eru meðal þeirra sem hafa kynnt varasalvan verulega og átt þátt í velgegni og vinsældum hans. Að eiga EOS, helst í mismunandi litum, hefur verið í tísku enda þarf oft minna til, þegar kemur að kynningum á vörum, sem frægar konur sýna ítrekað að þær noti.

En nú er komið upp nokkuð alvarlegt mál í Bandaríkjunum. Þar hafa nokkrar konur tekið sig saman og höfðað mál gegn EOS varasalvanum. Þær segja varasalvan hættulegan að því leytinu til að ofnæmisviðbrögð gegn honum geti verið mjög slæm, varir springi og sár og/eða blöðrur myndist á vörum og húðsvæðinu þar í kring.

\"\"

Vefsíðan Buzzfeed fjallar um málið í dag og segir að það séu þó ekki einungis konurnar sem höfuðu málið, sem ræði um galla í EOS varasalvanum. Þannig séu umræður á Twitter í þá áttina að sumir spái því að mun fleiri mál verði höfðuð gegn fyrirtækinu, auk þess sem tískubloggarar hafa birt færslur í þessa veru.

\"\"

Sem dæmi er nefnd Monica Robo, sem heldur úti versíðunni Monica Loves Makeup og er vinsæl í Bandaríkjunum. Hún birti mynd af vörunum á sér, eftir að hafa notað EOS og sagði síðan:

,,Það tók varirnar á mér um tvo mánuði að jafna sig að fullu.\"

\"\"

Miðað við vinsældir EOS varasalvana, er ekki ólíklegt að málshöfðunin muni rata reglulega í fréttir fjölmiðla og bara það eitt og sér að Buzzfeed segi frá málshöfðuninni, mun án efa vekja athygli margra. Það verður því fróðlegt að fylgjast með þessu máli næstu vikur og mánuði og að sjálfsögðu verður Zetan vakandi yfir því, hvort eitthvað dragi úr myndbirtingum þekktra kvenna, að nota varasalvan. Við minnum hins vegar á að það þarf alltaf tvo til að deila og nú er því ekkert að gera annað, en að fylgjast með hvernig málið fer.  

\"\"

 

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með hörkuspennandi og skemmtilegri matarkeppni Völu Matt á Hringbraut, öll miðvikudagskvöld kl.20!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!