Fallegar nektarmyndir af ólíku fólki (myndir)

Kanadískt tímarit, Now Toronto, birti nýlega aðra útgáfu af \"body isssue\" eða líkamstrímaritið eins og væri hægt að kalla það á íslensku. Buzzfeed fjallaði um myndirnar úr tímaritinu, Zetan rakst á umfjöllunina og vill taka þátt í því að fagna ólíkum líkömum. Nektarmyndirnar eru einstaklega fallegar og fanga vel einstaklingana, sem eiga mismunandi bakgrunn og hlutverk í lífinu. Mismunandi er hvort fólk hafi einhverja fatlanir, upplifað ákveðin áföll eða séu í yfirþyngd. Tilgangurinn er að sína lesendum hvernig ólíkir líkamar líta út. Við segjum að við eigum að vera stolt af líkama okkar því hann hefur farið með okkur í gegnum alla okkar lífsreynslu og gert sitt besta. 

 Myndirnar sem við birtum hér eru allar af einstaklingum sem vildu deila með tímaritinu ákveðna persónulegar sögur og sem hefur mótað það. 

 

Trommarinn Stephen Bowles, braut bakið sitt fyrir nokkrum árum. Var sú reynsla til þess að hann finnur til meiri samkenndar. Hann ber nú meiri virðingu fyrir ferðalagi hvers og eins. 

\"\"

 

Mannúðarsinninn Akio Maroon talar um reynslu sína sem kona í svörtum líkama. 

\"\"

 

Xica Ducharme, flugfreyja og burlesque dansari deilir frá reynslu sinni af fordómum.

\"\"

 

Adam Benn, einkaþjálfari og æskulýðsfulltrúi, talar um hvernig fitufordómar í æsku hafa haldið áfram að móta sjálfsmynd hans. 

\"\"

 

Rithöfundurinn Katie Sly segir frá því hvernig henni finnst nekt sín vera einn af styrkleikum sínum. 

\"\"

 

Flóttamaðurinn og baráttukonan Biko Beuttah segir frá reynslu sinni sem flóttamaður og transkona. 

\"\"

 

Bo Hedges er fyrirliði hjólastólakörfuboltaliðs síns.

\"\"

 

Leikkonurnar Ester, Jun og Rebekka ræddu um ólík viðhorf trúabragða við nekt og um hvort skipti meira máli í skemmtanabransanum, útlit eða hæfileikar. 

\"\"

 

Tiq og Kim Katrin Milan, ástfangið par og blaðamenn, deildu þessari mynd sinni eftir myndatökuna á Facebook, en var í kjölfarið bannaður aðagangur inn á síðuna í nokkra daga. Á sama tíma var sambærileg mynd af Lady Gaga og manni hennar sem fékk að njóta sín á samskiptavefnum. 

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!