Úúúú: það sem hann fann í nýju leiguíbúðinni var….

Í byrjun október árið 2013, flutti Daniel Carly frá Dublin til Englands. Áður en hann fór, tók hann íbúð á leigu, óséða en leigan var góð og myndirnar litu ágætlega út. Daniel leist líka vel á íbúðina þegar hann var kominn á staðinn. Í blokkinni voru um 30 íbúðir allt í allt. Búið var að gera upp flestar íbúðir, en sjálf byggingin var nokkuð gömul og hafði í gegnum tíðina gegnt ýmsu hlutverki, áður en blokkin í heild sinni var gerð upp sem íbúðarblokk.

En þegar Daniel hafði búið í nýju íbúðinni í um það bil viku, fór hann að velta svolítið skrýtnu fyrir sér.  

Á parketgólfinu fyrir framan baðherbergið, var hleri á gólfinu.

\"\"

 
Þegar hann opnaði hlerann, sá hann ýmislegt dót.....

\"\"
 
....en þegar nánar var að gáð sást að þetta var ekki lítið geymsluhólf í gólfinu, heldur lá stigi niður.

Daníel var einn heima og klukkan var um tíuleytið að kvöldi til.

Hann velti fyrir sér hvað hann ætti að gera....

\"\"

Ætti hann að þora niður stigan?

Jú, Daniel ákvað að fara niður stigan og tók videomyndavél með sér.
 \"\"

Svolítið óhugnanlegt samt!

\"\"
 
Frá stiganum í kjallaranum, var mjór gangur.
 \"\"

....sem leiddi hann á endanum inn í stórt herbergi.
 \"\"

Í herberginu var eitthvað sem minnti helst á grafhýsi eða beddi úr múrsteinum?

\"\"
 
Skammstöfunin á veggnum virtist óhugnanleg, en síðar kom í ljós að þetta var skammstöfun á fótboltaliðinu ,,Coventry City Football Club.”
 
Daniel fann síðan dagblað sem var dagsett 10.apríl árið 1984.  Það var því augljóst að einhver hafði verið í herberginu, tæpum þrjátíu árum fyrr.

En til hvers kjallarinn var notaður, segist Daniel ekki hafa neina hugmynd. Kjallarinn er samt strangt til tekið hluti af því rými sem hann greiðir leigu fyrir.

\"\"
 
,,.....ég býst samt ekki við að halda nein matarboð þar\"

segir Daniel í lokin á myndbandi af leynda kjallarnum, sem hann deildi á Youtube og sjá má hér að neðan. Hann segist með fundinum, hafa áttað sig á því hvers vegna leigan á íbúðinni var svona hagstæð.  

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

 \"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!