Birti bréf á facebook frá látinni eiginkonu

Um miðjan desember, birtist færsla á Facebook, sem vakti svo mikla athygli að þegar þetta er ritað, hefur henni verið deilt í yfir 23 þúsund skipti. Sá sem birti færsluna, heitir Jeff McManamy. Hér er færslan í lauslegri þýðingu, en hún byggir á bréfi sem Heather McManamy, eiginkona Jeff, vildi að hann birti eftir að hún létist. Heather var 36 ára þegar hún lést. Hún greindist með brjóstakrabbamein árið 2013.
 
,,Ég birti þessa færslu fyrir hönd stóru ástarinnar í mínu lífi. Þetta eru því hennar orð. Kveðja til ykkar allra – Jeff McManamy.

Jæja, ég er greinilega með góðar fréttir og slæmar fréttir. Slæmu fréttirnar eru þær að ég er greinilega dáin. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að þú ert að lesa þetta, þannig að þú ert það greinilega ekki (nema þeir séu tengdir með wifi þarna uppi). Já, þetta er ömurlegt. Ömurlegra en orð fá lýst, en ég er samt svo ánægð með lífið sem ég hef lifað, það hefur verið fullt af ást, gleði, hamingju og ótrúlega góðum vinum. Sem betur fer, sé ég líka ekki eftir neinu, enda gerði ég allt hvað ég gat, til að njóta lífsins. Ástarkveðjur frá mér og takk fyrir frábæra samveru.
 
\"\"Ef þið eruð trúuð, hver svo sem sú trú er, þá er ég bara ánægð ef trúin hjálpar ykkur í sorginni. Vonandi virðið þið það samt við okkur, að við erum ekki kristin. Þetta þýðir meðal annars að mig langar ekki að þið segið við Briönnu dóttur okkar að ég sé farin til himna. Barnið myndi líka halda að ég hefði þá farið eitthvað annað í stað þess að vera hjá henni. Hið rétta er auðvitað að ég myndi HVERGI annars staðar vilja vera, en hjá henni og Jeff. Farið því varlega í það hvernig þið orðið þessa hluti.
 
Enda er ég ekkert uppi á himni. Ég er hér.

Það eina sem hefur breyst, er að ég er ekki í líkamanum, sem reyndar brást mér hvort eð er. Orkan mín, ást mín til ykkar, hláturinn og minningarnar með ykkur eru samt enn þá hér.
Já, allt hér hjá ykkur.
 
Þið skuluð því alls ekki verða niðurdregin þegar þið hugsið til mín. Brosið frekar og minnist þess hvað við áttum frábærar stundir saman. Þið vitið líka að ég vissi fátt skemmtilegra en að fá fólk til að hlæja. Endilega hugsið því ekki of mikið um síðustu metrana mína í veikindunum. Hugsið frekar um allar gleðistundirnar sem við áttum fyrir þann tíma, stundirnar sem okkur fannst hreinlega FRÁBÆRAR!

Getið þið líka endilega verið dugleg að segja Briönnu sögur um hversu mikið ég elskaði hana og hversu stolt ég var af henni og verð alltaf. Það að verða mamma er það sem mér hefur þótt hvað vænst um enda hefur hver stund með henni, verið hamingjustund í mínu lífi. Í raun hefði ég varla getað trúað því hversu mikið heimurinn breyttist eftir að hún fæddist.

Ekki tala heldur um að ég hafi tapað stríðinu við krabbameinið. Krabbinn tók vissulega margt, en hann náði þó aldrei að stela ást minni, von eða gleði. Krabbinn var líka ekkert ,stríð” sem ég stóð í, heldur hluti af lífinu. Lífið getur nefnilega verið svo skrýtið stundum og oft óréttlátt, en þetta er samt lífið og svona gerast hlutirnir bara. Í mínum huga, hafa síðustu árin með krabbanum líka verið tímar sigra. Reyndar oft tímar glæstra sigra, þannig að ekki gleyma þeim því.

Heppnust er ég þó fyrir að hafa á annan áratug átt tíma með stóru ástinni minni og mínum besta vini: Jeff. Sönn ást og sálufélagar er er svo sannarlega til og hver dagur með honum var dagur ástar og kærleika. Hann er líka besti eiginmaður í heimi og í gegnum veikindin, hefur hann staðið við hlið mér eins og klettur. Sama hversu erfitt ástandið varð, fundum við okkur líka tíma alla daga til að hlæja eitthvað saman. Ég elska hann því út af lífinu og trúi því að ást eins og okkar, muni lifa að eilífu. Ég elska þig Jeff. Ávöxtur ástar okkar er síðan Brianna, jafn falleg og hún er.
 
Það er ótrúlega erfitt að kveðja. En ef þið eruð leið, þá líður mér eiginlega verr. Vonandi á ykkur samt eftir að fara að líða betur og á endanum verð ég einhver, sem þið hugsið alltaf til með bros á vör. Nú, ég get líka bent ykkur á að gúggla bara einhverjar síður hjá hinum og þessum miðlum. Þar finnið þið örugglega einhverjar vísindalegar sannanir um að í raun sé ég hérna enn. Ég trúi því reyndar sjálf og hvet ykkur því bara til að staldra aðeins við og athuga hvort þið hafið ekki á á tilfinningunni stundum, að ég sé einhvers staðar í kring. Þið eruð heimurinn minn og sá heimur sem ég elskaði hverja þá sekúndu sem ég lifði.

Þannig að kæru vinir. Ég elska ykkur öll og vill þakka ykkur fyrir frábæra samveru. Þakkir einnig til allra ótrúlegu læknanna og hjúkrunarfólksins sem sáu svo vel um mig síðustu misserin. Veit þið eruð besta liðið sem ég gat mögulega fengið.
 
Öllum ykkar óska ég gæfu og langlífis og vona að þið metið lífið og hvern þann dásamlega dag sem þið upplifið. Það reyndi ég að gera. Þau ykkar sem mætið í jarðaförina mína, endilega fáið ykkur í glas í veislunni. Já elskurnar mínar, þið mættuð dansa upp á borðum fyrir mér. Notið tilefnið til að fagna öllu því dásamlega í lífinu og þar sem þið vitið nú að ég vildi aldrei missa af neinu fjöri, skal ég lofa því að reyna með einhverjum hætti að vera þarna hjá ykkur líka.
 
Hlakka síðan til að ganga aftur og hræða líftóruna úr ykkur öllum. Sú tilhugsun finnst mér reyndar svo skemmtileg að fyrir vikið finnst mér ekki eins erfitt að kveðja. Sé ykkur síðar en lofið mér einu:

Hugsið um það í augnablik á hverjum einasta degi, hvað lífið er verðmætt og hversu brothætt það getur verið. Gleymið því aldrei að HVER DAGUR skiptir máli.\"

\"\"

 

Keppni: Besti maturinn með Völu Matt á miðvikudögum á Hringbraut. Hver vinnur? Hvernig er hægt að elda holla og góða máltíð fyrir 3.000 krónur? Ekki missa af Besti maturinn með Völu Matt á Hringbraut kl.20 á miðvikudagskvöldum. Endursýningar um helgar.

 

 

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!