,,elsku þú...\" (lestu þetta þegar þú ert óörugg!)

Zetan rekst einstaka sinnum á skrif sem nánast fá gæsahúðina til að rísa því þau eru svo falleg. Hér er gott dæmi. Þetta er pistill sem listakonan og förðungarfræðingurinn Helma Þorsteinsdóttir skrifaði fyrir ekki svo margt löngu og birti á Facebook. Zetan fékk leyfi Helmu til að deila skrifunum með lesendum.

 Það skal tekið fram, að þetta er ekkert síður góð lesning fyrir karlmenn eins og konur. Helma beindi þó orðunum til kvenna. 

,,Þegar þú ert óörugg!

Elsku þú.

Akkurat núna ertu óörugg, þér líður eins og þú sért ekki nógu góð , nógu sæt, ekki nógu gáfuð, eða of venjuleg.  Það er ekki af því  að þú elskar ekki sjálfa þig. Í augnablikinu ertu bara ekki alveg 100 % þú sjálf.

Innst inni veistu að þú getur gert ýmislegt.

Ég vil minna þig á nokkra hluti.

Þú ert góðhjörtuð, og fólk kann að meta þig og alla þá ást sem þú hefur uppá að bjóða.

Þú ert elskuð af svo mörgum, þó að það sé ekki stöðugt verið að minna þig á það.

Þú ert ótrúleg manneskja og skreytir veröldina með þínum einstöku hæfileikum, gjöfum og  persónuleika.

Það er engin eins og þú í þessum heimi,  pældu í því hversu magnað það er.

Þú ert einstök.

Það er í lagi að vera óörugg, óöryggi er náttúruleg tilfinning, en passaðu þig að láta ekki  óöryggið ná yfirhöndinni.

Hættu að bera þig saman við aðra.

Við verðum öll óörugg, en munurinn á mér og þér gerir lífið svo mikið skemmtilegra.

Þú mátt vita að þú ert falleg, ekki bara að utan ... heldur líka að innan.

Þú hefur svo uppá margt að bjóða og  hver sem kemur inn í líf þitt er heppinn að fá að kynnast þér.

Þú ert góð

Þú ert blíð

Þú ert hugulsöm, skemmtileg og fyndin.

Heimurinn er betri út af manneskjum eins og þér.

Gerðu mér greiða , hugsaðu til baka.

Hvað var það sem gerði þig mest stolta?

Var það þegar þú útskrifaðist?

Var það þegar þú eignaðist þitt fyrsta barn?

Eða fékkst drauma starfið?

Haltu í þessa minningu... og mundu að þú getur breytt heiminum og ert óstöðvandi.  Þú þarft bara að trúa því.

Óöryggi er ekkert annað enn nokkrar neikvæðar hugsanir sem draga þig dýpra og dýpra , en bara ef að þú leyfir þeim að angra þig.

Mundu bara öll þau augnablik sem að þú varst stolt af sjálfri þér.

Vertu jákvæð, jákvæðnin hjálpar þér , þú hristir neikvæðnina og óöryggið ósjálfrátt  af þér og þér finnst þú vera frábær.

Þú þarft bara að trúa á sjálfa þig.

Innst inni veistu hvers virði þú ert það þurfti bara að minna þig á það!

Þú ert FRÁBÆR.\"

Helma Þorsteinsdóttir.

\"\"Helma er þriggja barna móðir og býr á Álftanesi. Hún rekur listasmiðjuna Helma ART

 

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!