Amman fékk dúkku í jólagjöf og er alsæl

Hér er hjartnæm saga um elliæru ömmuna sem fann gleðina á ný með jólagjöf frá barnabarni sínu sem gaf henni dúkku. Barnabarnið Maxine Danielle birti myndbandið á vefnum og hafa yfir fimm þúsund manns deilt sögunni. Í myndbandinu, sem er að finna neðst í greininni, sést hvernig amman er alsæl með dúkkuna og ruggar henni og lætur ropa. Það leynir sér ekki hvernig lifnar yfir henni og gleðin tekur völdin. 

\"\"

Þessi saga er þó ekki einsdæmi, því samkvæmt grein sem birtist á vefnucarehome.co.uk hafa viss hjúkrunarheimili aldraðra prófað aðferðina og boðið vistmönnum að hugsa um dúkkur eða bangsa. Aðferðin er talin draga úr notkun lyfja sem taka á andlegum krankleika um allt að 92%. Það að huga að dúkkunum er sagt draga fram hamingjusamar minningar frá uppeldisárum barna þeirra og vekur því hjá þeim töluverða gleði. Einnig hefur það dregið úr kvíðaeinkennum og öðrum andlegum veikindum. Vistmenn hjúkrunarheimilanna upplifa meiri ró sem hjálpar líka starfsmönnum í ummönnun og auðgar tengsl þeirra. Aðferðin er ekki rannsökuð í þaula og eru dæmi um gagnrýnisraddir sem segja aðferðina vera niðrandi, barnalega eða niðurlægjandi. 

\"\"

Hvort sem aðferðin er niðrandi eða barnaleg þá finnst Zetunni aðferðin áhugaverð og fallegt að einfaldar og krúttlegar aðferðir sem þessar geti bætt líðan aldraðar á þennan hátt svo um munar. 

Hvað finnst ykkur? 

Hægt er að horfa á myndbandið hér.

 

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!