Ekki sofa í nærbuxunum: það er betra fyrir bæði kynin að sleppa þeim!

Zetan rakst á grein á Huffingtonpost, þar sem sérfræðingar mæla með því að fólk sofi ekki í nærbuxum. Ástæðan kemur reyndar kynlífi ekkert við, heldur segir Dr. Alyssa Dweck að það að sofa nærbuxnalaus sé hreinlega betra fyrir kynfærin. Öll svitnum við til dæmis í svefni, sem fyrir konur getur verið óæskilegt á kynfærasvæðinu. Bakteríur eflast oft við raka og svitamyndum, sem er minni ef þær eru ekki í nærbuxum og leyfa því loftinu að flæða um. Í sömu grein, segir Dr. Raquel B. Dardik að það hún bendi konum á breytingarskeiðinu sérstaklega á að sleppa nærbuxunum og sofa frekar berar að neðan.

En gildir það sama um karlmenn?

Já segir þvagfæralæknirinn Brian Steixner. Það er vegna þess að sviti og rakamyndun, getur á sama hátt eflt bakteríur á kynfærasvæði karlmanna og aukið þannig líkur á að húðin á limnum verður viðkvæmari fyrir vikið og næmari fyrir sýkingum. Þá segir í greininni að til að hámarka sæðisframleiðslu karlmanna, skipti hita- og rakastig máli. Þegar karlmenn eru í nærbuxunum, verða eistun heit og það getur dregið úr gæðum og magni sæðisfruma.

Þeir sem ekki vilja sofa berir að neðan, fá þó þá ábendingu í greininni að sofa þá í eins léttum nærbuxum og hægt er. Sleppa bómullarnærbuxum og til að mynda er betra fyrir karlmenn að sofa þá í ,,boxers,” því þá flæðir loftið auðveldar um.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!