Ekki kaupa þér heyrnartæki núna, því þetta er það sem koma skal!

Að öllum öðrum símum ólöstuðum, þá verður að segjast að iPhone er bara málið! Zetan fylgist auðvitað vel með nýjungum og nú er sagt að þeir sem þurfi að kaupa sér ný heyrnartæki, ættu annað hvort að kaupa sér þráðlaus heyrnartæki, eða bíða!

Hvers vegna?

Jú, síðastliðnar vikur hafa þær sögusagnir verið á kreiki að nýr iPhone muni líta dagsins ljós næsta haust og honum muni ekki fylgja hefðbundin heyrnartæki. Í Huffingtonpost er haft heftir Marc Gurman, talsmann hjá Apple, að þessar sögusagnir séu réttar. Þannig muni nýi iPhone síminn virka fyrir þráðlaus heyrnartæki, sem tengjast símanum í gegnum Bluetooth.

Þá eru einnig uppi sögusagnir um nýtt útlit á símanum, útlit sem sagt er mjög ,,nútímalegt.”

Nánar má lesa um þessar vangaveltur í grein Huffingtonpost, en það eina sem Zetan segir er: Hugsaðu þig alla vega tvisvar um, áður en þú fjárfestir í dýrum heyrnartækjum með snúru.....

\"\"

Við mælum með á Hringbraut: Ólafarnir!

Hagfræðingarnir Ólafur Arnaldson og Ólafur Ísleifsson, taka þjóðmálaumræðuna á fimmtudagskvöldum, svona eins og þeim er einum lagið. Ólafarnir eru á dagskrá kl.21.30 og kl.23.30 í kvöld.  Þátturinn er endursýndur um helgar.

 \"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!