Ekki birta þetta á facebook, án leyfis frá vinum og vandamönnum

Þegar það bætist við nýr fjölskyldumeðlimur fagna allir í kring. Enda ekkert dásamlegra. Það þarf samt að hafa það aðeins í huga, hvaða myndir við birtum á Facebook um þessar stærstu fréttir úr fjölskyldu- eða vinahópi.

Það sama gildir reyndar um andlát.

Zetan rakst á grein, sem birt var á mashable.com, þar sem bent er á 5 atriði, sem mælt er með því að fólk hafi í huga, áður en það birtir fréttir um fæðingu barns og Zetan getur ekki betur séð, en að yfirfæra megi þessi sömu atriði á tilkynningar um andlát.  

1. Ekki birta myndir sem foreldrarnir eða nánustu aðstandendur, hafa ekki gefið leyfi fyrir

2. Leyfið foreldrunum að birta fyrstu fréttirnar um að barnið sé komið í heiminn (eða nánustu aðstandendur að tilkynna andlát)

3. Gerið ,,líkar við” eða skrifið ummæli, en deilið ekki myndum eða tilkynningum foreldra eða nánustu aðstanenda, án leyfis

4. Gefðu foreldrum og/eða nánustu aðstandendum, smá svigrúm áður en þú ferð að hringja eða senda SMS í kjölfar tilkynninga sem þú sérð á Facebook

5. Verið dugleg að fá leyfi, eða birtið ekki myndir eða tilkynningar nema þið séuð viss um að foreldrar og/eða nánustu aðstanendur, séu birtingunni samþykk.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!