Einelti í 5.bekk en hún sneri vörn í sókn!

Einelti er eitthvað sem við erum vonandi öll sammála um að á ekki að líðast, en því miður fylgikvilli alls staðar, hér heima sem erlendis. Zetan rakst á skemmtilega sögu af einni 10 ára gamalli stúlku frá New York. Hún heitir Egypt Ufele og er alltaf kölluð Ify.

Ify er frekar þétt og segir að fyrir vikið hafi henni oft verið strítt. Þar segir hún að krakkarnir hafi þá helst uppnefnt hana alls kyns ljótum nöfnum og í eitt skiptið var hún stungin með blýanti í skólanum.

\"\"En Ify hefur nú snúið vörn í sókn, en spurningin er bara: hvernig fór hún að því?

Jú, áhugamál Ify er hönnun. Hún ákvað að taka þátt í tískukeppni í New York og sendi inn tillögur að fatnaði fyrir börn í yfirþyngd. Svo góðar viðtökur fengu tillögurnar að Ify endaði sem þáttakandi í New York Fashion Week. Fatnaður Ify telst reyndar ekki endilega fatnaður fyrir börn sem eru mjög þung, heldur frekar börn sem eru í þykkara lagi eins og hún. ,,Curvy lines” eins og Bandaríkjamenn kalla þetta.

Ify notaði saumavél ömmu sinnar til að sauma þau föt sem hún hannaði. Svo mikla hrifningu vakti hún á tískuvikunni að hún rataði ekki aðeins í fjölmiðla sem yngsti þáttakandi tískuvikunnar, heldur segjast menn spá því að Ify eigi eftir að skapa sér nafn í þessum heimi.

Við Today sagði Ify um árangurinn:

,,Ég ákvað að snúa neikvæðri athygli í jákvæða athygli.”

Og það tókst henni svo sannarlega!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!