Eiginmaðurinn sendi nektarmynd á ranga konu (myndir)

Það er greinilega hægt að koma sér í alvarleg vandræði á Snapchat og það á svo sannarlega við um eiginmanninn sem sendi nektarmynd af sjálfum sér til eiginkonu sinnar. Sá heitir Jeremy og endaði heldur betur í nokkrum vandræðum.

Allt byrjaði þetta á mynd sem hann virtist vera að senda á eiginkonu sína, að minnsta kosti sýndi hann á sér kroppinn í allri sinni dýrð.

\"\"

Móttakandinn var reyndar ekki eiginkonan.

Sú sem fékk myndina, var vinkona eiginkonunnar. Hún ákvað að stríða Jeremy aðeins og senda honum mynd til baka. Hún hélt með því, að Jeremy myndi uppgötva mistökin og fatta að hann væri ekki að senda á eiginkonuna.

 

\"\"

En viðbrögð Jeremy voru engan veginn á þeim nótunum, því hann sendi næstu mynd og var greinilega meira en til í tuskið.  

 \"\"

\"\"Eftir nokkrar myndir til viðbótar frá Jeremy, ákvað vinkonan að nú væri hins vegar ekkert annað í stöðunni en að hafa samband við eiginkonuna. Þar sagði hún frá því hvað hefði gerst og auðvitað brást eiginkonan strax við með því að bera atvikið upp á Jeremy.

Jeremy þessi, áttaði sig hins vegar ekki á því að eiginkonan var bara að tala um þetta eina tilfelli. Hann játaði því að stunda að senda svona myndir til kvenna á Snapchat.

Sem gerði eiginkonuna auðvitað enn þá reiðari!

Tja... að sögn Scribol, endaði sagan víst með hjónaskilnaði.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!