Eiginmaður celine dion: var búinn að skipuleggja jarðaförina

René Angélil, eiginmaður Céline Dion, lést úr krabbameini síðastliðinn fimmtudag. Aðfaranótt laugardags, lést síðan einn eldri bróðir Dion, Daniel. Það ríkir því mikil sorg þessa dagana hjá söngkonunni.

Vefsíðan People segir frá því í dag, að René hafi verið búinn að skipuleggja jarðaförina áður en hann lést. Náin vinkona Dion, segir að það hvernig hann hafi gert það síðustu mánuði, sé að hjálpa Dion nú í að takast á við sorgina.

,,Hann vissi ekki hvenær þetta myndi gerast, en vildi að allt yrði vel undirbúið og klárt” segir Annie Horth, vinkona hjónanna og stílisti Dion til margra ára. Jarðaförin verður haldin í kirkjunni, þar sem Dion og René giftu sig fyrir rúmlega tuttugu árum síðan.

,,Öll jarðaförin, verður eins og hann vildi hafa hana. Hann vildi augljóslega halda hana, þar sem hann giftist ástinni sinni.”

Hér eru nokkrar myndir af Dion og René í gegnum árin.

René gerðist umboðsmaður Dion árið 1981. Svo mikla trú hafði hann á henni, að hann veðsetti húsið sitt til að koma henni á framfæri.

\"\"

 

\"\"

René og Dion giftu sig þann 17.desember árið 1994.

\"\"

Árið 2001, eignuðust þau elsta son sinn. Það var eftir að hafa farið í tæknifrjóvgun.

\"\"

Árið 2010, eignuðust hjónin tvíburadrengi, einnig með aðstoð tæknifrjóvgunar.

\"\"

Í dag er Dion á samning hjá Caesars Palace í Las Vegas. Hún ræddi veikindi René í viðtali við USA TODAY í ágúst síðastliðnum. Þá var vitað í hvað stefndi, en Dion sagði þá: 

,,Helsta verkefnið mitt, er að sannfæra manninn minn um að það verði allt í lagi með okkur. Ég mun sjá um börnin. Þú munt bara fylgjast með okkur frá öðrum stað.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!