Eiginmaður celine dion, rené angélil, látinn

Eiginmaður söngkonunnar Celine Dion, René Angélil, er látinn. Hann var 73 ára. Celine Dion og René hafa verið gift frá árinu 1994. Banamein René var krabbamein.

René var umboðsmaður Celine Dion í rúmlega 30 ár, en hætti í því hlutverki árið 2014. Þá greindist hann með krabbamein í hálsi.

Í tilkynningu Celine Dion á Facebook segir:

,,René Angélil, 73, lést í morgun á heimili sínu í Las Vegas eftir langa og harða baráttu við krabbamein. Fjölskyldan óskar eftir næði, en nánari upplýsingar verða veittar síðar.\"

\"\"

 

Við mælum með á Hringbraut: Heilsuráð Lukku.

Í nýjasta þætti Lukku á Hringbraut, tekur hún meðal annars fyrir, hvað er hægt að gera til að minnka líkur á krabbameini. Þátturinn er sýndur á mánudags- og miðvikudagskvöldum, en einnig endursýndur um helgar.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!