Eiga 6 lítil börn en læknarnir spurðu ,,verður þú ekki að láta hana deyja?

Á Instagram fylgja þúsundir lesenda eftir fjölskyldu sem heitir Dunstan. Það má eiginlega segja að Dunstanfjölskyldan hafi slegið í gegn á netinu. Dunstan fjölskyldan telur 8 manns. Það eru hjónin Chloe og Rhoe. Síðan er það Evan litli sem er 3 ára, Otto sem er 2 ára og Felix sem er 1 árs.

Á síðasta ári bættust síðan við 3 kríli: Þríburarnir Henry, Rufus og Pearl.

Við látum nokkrar myndir af Dunstan fjölskyldunni fylgja með hér að neðan, en það eru eflaust þær sem fá svo marga til að fylgjast með þessari kraftmiklu og fjölmennu fjölskyldu. En foreldrarnir stóðu samt frammi fyrir mjög erfiðri ákvörðun í fyrra.

Það var þegar þríburarnir fæddust.

Þegar Chloe var gengin 28 vikur með, sögðu læknar henni að til þess að láta drengina lifa, gæti verið æskilegt að stúlkubarnið væri látið deyja. Á þeim tíma var ljóst að stúlkubarnið var minna en drengirnir tveir og öll börðust þau við að halda lífi í móðurkviði. Börnunum vantaði bæði súrefni og meiri næringu. Chloe hafði verið sett á að fæða 22.september. Þetta var hins vegar í byrjun júlí. Chloe gat ekki hugsað sér að taka meðvitaða ákvörðun um að láta eitt barn sitt deyja.

Nei sagði hún.

Frekar bað hún læknana um að taka áhættuna með sér og fæða öll börnin fyrir tíman. Það gerði hún, 3.júlí í fyrra. Næstu 11 vikurnar á eftir, dvöldu börnin síðan á sjúkrahúsinu. En þegar leið undir lok september, fengu þau loks að fara heim. Um þessa upplifun, sagði Chloe við Dailymail í Ástralíu:

,,Pearl hefði dáið ef við hefðum ekki farið í fæðinguna strax, ég mun því aldrei sjá eftir þessu. Ég man þó eftir því að hafa í eitt örstutt augnablik velt því fyrir mér hvort ég ætti að láta hana fara og bjarga þannig bræðrum hennar. En nú er hún hér og ég get eiginlega ekki hugsað þá hugsun til enda ef ég hefði tekið aðra ákvörðun en ég gerði.”

Á þessari mynd, má sjá hversu lítil Pearl var þegar hún fæddist. Chloe birti hana á Facebooksíðu fjölsyldunnar og sagði að þarna hefði Pearl ekki einu sinni verið orðin sólahringsgömul. Þríburarnir hefðu öll sýnt hetjudáð fyrstu dagana og vikurnar sem þau lifðu. ,,En Pearl barðist mest\" sagði Chloe.

\"\"

Pearl dafnar nú vel eins og sjá má. Hér er nokkuð ný mynd af henni og síðan fylgja með fleiri af henni og bræðrum hennar.

Frábærar fjölskyldumyndir úr myndaalbúmi Dunstanfjölskyldunnar.

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!