,,ég mun alltaf elska hann”

Íslendingar hafa til þessa ekki fylgst mikið með Bollywoodmyndunum svokölluðu, eða ástarmálum stórleikara þeirra. Það gæti þó breyst, enda stutt síðan stórmyndin Dilwale var tekin upp hér á landi. Í þeirri Bollywoodmynd lék Shah Rukh Khan annað aðalhlutverkið, en hann er gríðarlega vinsæll í heimalandinu. Dilwale er talin verða ein tekjuhæsta kvikmynd Bollywood frá upphafi og ykkur er óhætt að trúa því, að þar er verið að tala um miðasölu uppá milljarða!

En ástarmálin hjá Bollywoodleikurunum eru auðvitað í brennidepli hjá fjölmiðlum, eins og almennt gerist með frægt fólk. Nokkuð hefur verið um það síðustu vikur, að fólk telji Khan og stórstirnið Deepika Padukone vera hætt saman. Alls kyns vangaveltur hafa verið um ástæður sambandsslita, þó helst þær að þau hafi hreinlega fjarlægst hvort annað vegna anna og fjarbúðar.

En nú er Deepika búin að taka af allan vafa: Hún og Khan eru ekki hætt saman!

Á vefsíðunni Hollywoodlife er haft eftir Deepika:

,,Mér finnst svo fáránlegt, hvernig fólk reynir að búa til einhver mál úr engu. Ég mun alltaf elska hann. ... Það er ekkert sem mun koma upp á milli okkar. Það mun aldrei gerast.”

Og þar höfum við það!

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!