,,ég er kennari”

,,Ég er kennari.” Stundum segi ég þetta við sjálfan mig aftur og aftur. Og aftur og aftur. Tel upp á 10 og anda út, anda inn. Endurtek þar til ég finn ró í huganum, sálinni og hjartanu.

Sérstaklega í hjartanu.

Ég verð að gera þetta, vegna þess að eins og umræðan er um starfið mitt, þá byggir hún oftast fyrst og fremst á gagnrýni á menntakerfinu, kennarastarfinu, útkomum í prófum, læsi. Vitnað er í tölfræði og þróun. Og ofan á allt saman, eru það helst stjórnmálamenn sem tjá sig. Oft velti ég því fyrir mér hvort maður ætti ekki bara að hætta þessu. Finna frekar annað starf, sem í ofanálag gæti kannski greitt meira af reikningunum mínum um hver mánaðarmót.

En ég er kennari.

Og í því felst að reyna að opna huga nemenda minna. Hjálpa þeim að skoða og nema alla hluti með gagnrýnni hugsun. Í starfinu hvetur maður nemendur til að sækja sér í þekkingu, læra meira og læra eitthvað nýtt. Finna svör við þeim spurningum sem þau hafa. Oft reynir á þau, en það er hluti af því sem starfið felst í: Að hvetja þau til dáða, fá þau til að halda áfram. Ekki bara vegna námsefnisins, heldur ekkert síður til að læra betur að þekkja hvort annað og efla félagsfærnina sína. Að læra það sem stendur utan rammans þeirra. Það er svo margt mannlegt í kennslunni. Í skólanum læra börnin nefnilega svo margt um lífið og tilveruna. Þótt þau læri ekki neina tölfræði um hvernig menntakerfið stendur sig.

Það er nefnilega ekki allur árangur mælanlegur. Lífið snýst því ekki allt um magn og gæði. Heldur raunveruleikan. Og um hann læra krakkarnir líka í skólanum.

Og hver er raunveruleiki kennarans? Tja, satt best að segja er þetta bara andsk.... erfitt starf. En það er mikilvægt. Tekur breytingum og þróast, sem reynir líka á okkur sem einstaklinga. En þetta er starf sem skiptir máli og ætti helst að vera metið sem slíkt.

Reyndar er kennsla hálfgert nám. Þú berð á borð námsefni sem þú vonar að gagnist nemendum síðar í lífinu. Hvort sem það er stafsetning, málfar, að læra eitthvað utan að eða að reikna.... allt snýst þetta jú um að læra sér til gagns.

Og ég er kennari.

Mér finnst það áskorun að kenna nemendum mína rétta stafsetningu og þótt þið haldið kannski að það sé auðvelt, þá reynir nú oft á ímyndunaraflið að gera það. Kennarar vilja nemendum sínum vel. Vilja kenna þeim að vera dugleg að spyrja spurninga, skoða málin með gagnrýnu hugarfari, efla þörfina hjá sér til að vita meira og vera almennt góðar manneskjur.

Já, ég er kennari.

Og sem kennari, er ég ekki að reyna að troða einhverjum hugmyndum í haus nemenda minna. Nei, ég vill miklu frekar efla huga þeirra sjálfra. Ég kenni þeim kannski ekkert um það hvernig þau geti efnast og orðið rík, en legg áherslu á að þau finni smátt og smátt, hvað það er sem gerir þau ánægð eða þau finna sig sérstaklega í. Almennt er ég því ekkert að segja þeim eitt eða neitt, sem endurspeglast í því hvernig menntakerfið er í heild sinni en ég reyni samt að kenna þeim að setja markið sitt hátt og stefna að þeim. Orkan og áherslan mín fer nefnilega í þau sjálf. Það eru fyrst og fremst þau sjálf, sem gera starfið mitt þess virði. Og þeirra árangur.

Ég er kennari.

Og óháð umræðunni um menntakerfið, mögulegan einkarekstur skóla, stefnu í menntamálum eða hvað annað sem stjórnmálamenn eða aðrir geta deilt um, þá er þetta það eina sem ég þarf að muna og halda mínum fókus á: Að vera kennari.

Það er ég.

\"\"Höfundur: Lola Lolita, bloggari, rithöfundur, eiginkona, kennari og móðir með meiru. Lola Lolita er líka mjög virk á Twitter, fyrir þá sem vilja fylgjast meira með skrifum hennar, en pistlana birtir hún á vefsíðunni sinni Sammiches and PsychMed.

 

Við mælum með á Hringbraut:

Ég bara spyr er á dagskrá Hringbrautar á miðvikudagskvöld kl.21.30. Þar eru spurningar lesenda Spyr.is teknar fyrir og málin rædd til hlítar. Fylgstu með og taktu þátt í dagskrárgerð með því að senda spurningu til Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar.

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!