,,ég ættleiði börn sem enginn annar vill og skal segja ykkur hvers vegna...”

Þau kalla heimilið sitt ,,Hús vonarinnar,\" en Today segir frá hjónunum Cori og Mark Salchert í dag, sem vægast sagt sinna einstakri hugsjón. Hún felst í því að taka að sér alvarlega veik ungabörn, sem eiga stutt eftir. Nú þegar hafa hjónin tekið að sér tvö börn, þar af er annað látið. Það var Emmalynn. Hún náði að búa hjá Cori og Mark í 50 daga, áður en hún lést í fangi Cori. Seinna barnið sem hjónin tóku að sér er drengurinn Charlie. Hann er í öndunarvél og þarf að hafa fyrir hverjum andardrætti sem hann dregur. 

En hvers vegna vilja hjónin taka að sér svona veik börn?

Cori svarar þessari spurningu: ,,Litla systir mín, Amie, fæddist mikið fötluð vegna galla í mænu. Sýking leiddi síðan til heilaskaða og Amie endaði því með að alast upp á heimili fyrir fötluð og greindarskert börn. Þetta hafði mikil áhrif á mig og í æsku spurði ég mig oft ,,Hvar var Guð þegar systir mín þurfti hvað mest á honum að halda?”\"

Cori starfaði sem hjúkrunarfræðingur og segist í gegnum það starf, hafa kynnst nánast öllum tegundum sjúkdóma og sjúklinga. Fyrst og fremst hafði hún þó alltaf áhuga á ungabörnum eða konum sem veiktust á meðgöngu. Að hjálpa foreldrum, sem lentu í áfalli í kjölfar fæðingu barns, var eitthvað sem hún fann að hún vildi leggja áherslu á. Ekki til þess að ,,laga” eitthvað, heldur til þess að draga úr vanlíðan og sorg þeirra sem í hlut eiga.

Cori stofnaði samtökin ,,Hope After Loss Organization in Sheboygan,” en þau höfðu það hlutverk að aðstoða sérstaklega fjölskyldur með alvarlega veik ungabörn. Fyrir fimm árum síðan, veiktist Cori hins vegar sjálf og þurfti að hætta að vinna. Það var þá sem hugmyndin kveiknaði og hún hugsaði með sér: Hvað með að ættleiða börn, sem eiga stutt eftir og foreldrar treysta sér ekki til að sinna? 

Í framhaldinu tóku þau að sér tveggja vikna stúlkubarn. Það var Emmalyn, sem sjá má á þessari mynd.

\"Emmalynn

Hjónin eiga sjálf fimm börn, sem tóku virkan þátt í umönnun Emmalyn, þann tíma sem hún lifði. Þegar Emmalyn lést, fundu þau öll fyrir tómarúmi og mikilli sorg, en voru þó sammála um að láta ekki staðar numið. Síðla sumars árið 2014, ættleiddu Mark og Cori fjögurra mánaða alvarlega veikan dreng. Það var Charlie.

Hér má sjá Mark með Charlie.

\"\"

Rétt eins og Emmalyn, var strax vitað að lífslíkur hans væru ekki miklar. Meðalaldur barna, með hans sjúkdóm eru tvö ár og því er staðan þannig í dag að hver dagur með Charlie gæti í raun orðið sá síðasti. Að minnsta kosti gerir fjölskyldan sér grein fyrir því, að eflaust mun Charlie kveðja þennan heim, áður en langt um líður. En Cori segir fjölskylduna upplifa sig heppna:

,,Þvílík gjöf sem það er, að fá tíma með þessum börnum, að fá tækifæri til að lina þjáningar þeirra, að hugsa um þau og elska, vitandi það að þau geta ekki þakkað fyrir sig eða gefið til baka, nema með einstaka brosi...”

Hér eru nokkrar fjölskyldumyndir af Cori, Mark og börnum, með Charlie.

Hér er Andrew, sonur Cori og Mark, með Emmalynn í fanginu. Andrew er í dag 16 ára.

\"\"

Hér er dóttir hjónanna, Emily, með Charlie í fanginu. Emily er sjálf 14 ára.

\"\"

Hér eru Cori og dóttirin Johanna, að baða Charlie. Johanna er 22 ára.

\"\"

Hér er elsti sonur Cori og Mark, Jonathan, með Emmalynn í fanginu. 

\"\"

Cori og 18 ára dóttirin, Mary Elizabeth, með Charlie.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!