Dúkkur með sykursýki? komið í verslanir...

Í Bandaríkjunum er að slá í gegn taska með fylgihlutum fyrir dúkkur, en í töskunni er allt til alls sem til þarf til meðhöndlunar á sykursýki. Þetta hljómar kannski furðulega en er vægast sagt að slá í gegn. Það sem gerir söguna enn skemmtilegri, er að hugmyndina átti aðeins 11 ára gömul stúlka.

\"\"Sú heitir Anja Busse og er sjálf með sykursýki. Anja vildi geta leikið sér með dúkkurnar sínar eins og þær væru með sykursýki. Til þess, þurfti hún þó að vera með fylgihluti fyrir dúkkurnar, sem væru eins og hennar eigin fylgihlutir vegna sykursýkinnar. Hún sendi því leikfangaframleiðandanum American Girl bréf, þar sem hún stakk upp á því að þeir myndu framleiða þessa fylgihluti. Í fyrstu fékk hún engin viðbrögð, en Anja gafst ekki upp og hélt áfram í 2 ár að þrýsta á fyrirtækið.

Og nú er þetta orðið að veruleika!

Fylgihlutirnir innifela til dæmis blóðsykursmæli, insúlínpenna og fleira og auðvitað er þetta eitthvað sem hefur slegið í gegn nú þegar, sérstaklega hjá ungum stúlkum sem sjálfar eru með sykursýki. Hér má sjá nokkrar myndir en fleiri myndir má sjá á áskorunarsíðu Önju á Facebook. Sú síða, var á endanum sá vettvangur sem hrinti framleiðslunni af stað, því undirtektir fólks við hugmynd Önju komu skýrt fram á Facebook og fóru auðvitað ekki framhjá leikfangarisanum American Girl. 

\"\"

\"\"

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Heilsuráð Lukku er upplýsandi og fræðandi þættir um það sem betur má fara í mataræði landsmanna, en umsjárkona þáttanna, Lukka Pálsdóttir er landskunnur veitingamaður í Happi þar sem hún hefur að mörgu leyti farið ótroðnar slóðir í matargerð. Á dagskrá Hringbrautar á mánudagskvöldum kl.21, á miðvikudagskvöldum og í endursýningu um helgar.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!