Zetan rakst á áhugaverða frétt á BBC, þar sem segir frá Víetnömskum tvíburum sem eiga sitthvorn föðurinn. Þetta sýndu DNA niðurstöður á dögunum. Tvíburarnir eru ekki eineggja, en fjölskyldunni þótti þó mjög skrýtið, hversu ólíkir þeir voru. Úr varð að drengirnir fóru í DNA.
Að sögn prófessors sem fréttastofa BBC ræddi við, eru tilfelli sem þessi afar sjaldgæf. Aðeins er vitað um 10 tilfelli í heiminum, þar sem tvíburar reynast eiga sitthvorn föðurinn og þetta er því afar sjaldgæft. Þegar þetta gerist, frjóvgast hins vegar egg hjá konunni, með stuttu millibili. Ef konan hefur verið með sitthvorum manninum, getur það þýtt að börn sem hún gengur með og fæðir sem tvíbura, eru ekki samfeðra.
Í fréttum um drengina, kemur fram að það sem vakti helst grunsemdir um að ástæða væri til DNA rannsókna, var að annar tvíburinn var svo áberandi ólíkur systkinum sínum, þ.e. ekki aðeins tvíburabróður sínum.
Í fyrra kom upp sambærilegt mál í New Jersey í Bandaríkjunum. Þar reyndust tvíburasystur ekki samfeðra. Þá sögðu tyrkneskir fjölmiðlar frá tvíburabræðrum árið 2010, sem reyndust ekki samfeðra.
Viltu vinna þér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKORT?
SKRÁÐU NETFANGIÐ ÞITT HÉR!
Spyr.is er í samstarfi við Tölvísi um kannanir sem fólk getur tekið þátt í og fengið greitt fyrir. Með skráningu í viðhorfshóp Tölvísi er möguleiki á að vinna sér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKort en dregið verður úr nýjum meðlimum í lok mars. Tölvísi er hluti af alþjóðlegu umsjónarkerfi viðhorfahópa að nafni Cint sem hefur höfuðstöðvar í Stokkhólmi. Cint hefur umsjón með yfir 1.500 viðhorfahópum með alls 19 milljónum meðlima í yfir 65 löndum. Þátttakendur fá greitt fyrir að svara könnunum. Skráðu netfangið þitt með því að smella HÉR.