Deyjandi barn úr kíghósta: hverjir mótmæla bólusetningu eftir þetta? (myndband)

Æ fleiri foreldrar um allan heim, hafa síðustu misseri tekið upp á því að birta myndir af börnum sínum mjög veikum, eða jafnvel deyjandi, vegna kíghósta. Án undantekninga, biðja þessir sömu foreldrar um, að fólk bólusetji börnin sín, enda kíghósti ungabörnum lífshættulegur. Frá árinu 2011, hafa börn á Íslandi verið bólusett við kíghósta þegar þau eru 3 mánaða og þegar þau eru 5 mánaða. Erlendis er sums staðar miðað við 6 mánaða.

\"\"Á myndbandinu sem fylgir hér að neðan, má sjá eins mánaðar gamlan dreng, Riley Hughes frá Ástralíu. Hann lést af völdum kíghósta í mars á síðasta ári, en í Ástralíu er miðað við bólusetningu gegn kíghósta þegar börn eru 6 mánaða gömul. Verðandi mæðrum er einnig boðið upp á bólusetningu, fyrir fæðingu. Foreldrar Riley birtu myndbandið á Facebook undir yfirskriftinni ,,Hóstinn sem drap Riley.\" Í stöðufærslunni með myndbandinu, segir móðir Riley:

,,Ég hef geymt þessi myndbönd fyrir sjálfan mig..... En við deilum því nú í von um að fleira fólk sannfærist um bólusetningar, ekkert síst fyrir óléttar konur.

Ef nýfætt barn ykkar er að hósta og er of ungt fyrir bólusetningu, farið með barnið til læknis! Ég elskaði að vera mamma Rileys í 4 vikur. Vildi þó óska þess að það hefði verið lengri tími.\"

Í svari við fyrirspurn frá lesanda, sem birt var á Spyr.is, segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir að langflestir íslenskir foreldrar bólusetji börn sín, eða 98%. Lesa má svar Haraldar HÉR. Eins má benda á smithættu kíghósta, en nánar má lesa um þá hættu á vefsíðunni doktor.is.

Vinsamlegast deilið til foreldra.

Við mælum með á Hringbraut:

Mannamáli Sigmundar Ernis Rúnarssonar á Hringbraut kl.21.00 á miðvikudagskvöldum. Þar ræðir Sigmundur Ernir við þjóðþekkta Íslendinga, sem segja frá lífi sínu og starfi, skoðunum og afstöðu til manna og málefna. Sigmundur Ernir á að baki ríflega 30 ára farsælt starf í sjónvarpi og nær oft að sýna óvænta hlið á viðmælendum sínum. Fyrir vikið eru þættirnir á stundum mjög manneskjlegir, hlýir og einlægir. Mannamál með Sigmundi Erni er líka endursýnt á Hringbraut um helgar.

\"\"

 Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!