David bowie: gefur út plötu árið 2017

David Bowie, sem lést fyrr í þessum mánuði, var búinn að undirbúa útgáfur á nokkrum nýjum albúmum, sem hann vildi að kæmu út eftir að hann félli frá. Aðeins örfáir vinir og vandamenn hans, vissu að hann barðist við krabbamein. Independent greinir frá þessu í dag og segir að í all nokkurn tíma, hafi goðsögnin unnið að útgáfum, þar með talið samantekt úr tónlistarferli sínum, sem hann vildi að kæmu út, þegar hann væri fallinn frá. Bowie hafði undirbúið útgáfu Blackstar, sem kom út þann 8.janúar síðastliðinn. Útgáfa undir sama nafni, mun einnig koma út í nóvember næstkomandi og þá hefur Newsweek heimildir fyrir því, að Bowie hafi undirbúið útgáfu sem ætluð er í verslanir árið 2017. Fyrstu breiðskífu sína, gaf Bowie út árið 1965.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!