Dauðvona en fékk ósk sína uppfyllta!

Hann er aðeins 8 ára, stendur frammi fyrir dauðanum, er frá Rhode Island í Bandaríkjunum en hefur fangað hug og hjörtu fólks í Kína. Hvers vegna? Jú, Dorian Murray heitir hinn ungi drengur og hann berst við afar sjaldgæfa tegund krabbameins í vöðvum. Dorian gerir sér fulla grein fyrir því hvert stefnir og því er reynt að nýta tíman eins og hægt er, svona undir það síðasta.

Foreldrar hans spurðu meðal annars, hvað hann myndi vilja gera áður en hann færi yfir móðuna mikla.

,,Verða frægur í Kína!” svaraði sá litli og lyftu foreldrarnir brúnum. Jú, þetta var draumur Dorian, sem sagði skýringuna þá að hann væri svo heillaður af myndum af Kínamúrnum. Þessi aldagamli og sögulegi veggur, er hreinlega eitthvað sem Dorian litla finnst hreinlega stórfenglegt.

Nú voru góð ráð dýr, því auðvitað er Dorian langt frá því að vera ferðafær. Á síðasta sunnudag, ákváðu foreldrar hans hins vegar að bregðast við óskinni, með því að birta óskina á Facebook. Og viti menn:

Dorian er þegar orðinn frægur í Kína!

Auðvitað sá samfélagsmiðillinn um að koma þessu landamæra á milli og áður en fjölskyldan vissi af, höfðu bæði bandarískir og kínverskir miðlar líka tekið við sér. Fátt hefur því verið rætt um annað en Dorian í Kína, sem augljóslega er að fá sína hinstu ósk uppfyllta.

Rúsínan í pylsuendanum er síðan sú að fólk í Kína hefur verið duglegt að senda til Dorian myndir og baráttukveðjur frá Kína. Það á við um unga sem aldna, margir nýta tækifærið og taka myndir á veggnum sjálfum, en aðrir láta sér nægja að senda myndir og kveðju.

\"\"

\"\"

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar allar helgar. Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

 

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!