Dásamlegur dagur sem breyttist í martröð

Þetta var hreinlega dásamlegur dagur. Veðrið var gott og hjónin nutu þess að taka myndir þar sem þau gengu upp Rocky Mountain í þjóðgarðinum í Colarado. Toni og Haröld höfðu verið gift í 12 ár og voru að halda uppá brúðkaupsafmælið sitt. Þau höfðu verið þarna áður og nutu dagsins.

\"\"En því miður: Á augnabliki skikaði Toni fótur með þeim afleiðingum að hún féll niður tæpa 40 metra. Harold hringdi í ofboði í neyðarlínuna og fékk leiðbeiningar um hvernig hann ætti að bera sig að. Toni var augljóslega mjög alvarlega slösuð en hún var enn á lífi. Starfsmaður neyðarlínunnar gaf Harold leiðbeiningar fyrir bráðaaðstoð en allt kom fyrir ekki. Toni lést á staðnum.

Harold lýsti atvikinu þannig að þau hefðu verið að taka myndir þegar Toni skikaði fótur. Hún er ekki sú eina sem fjallið hefur tekið til sín, því í gegnum tíðina hafa fleiri látist þar við göngur. Mál Toni var nokkuð klippt og skorið og einfalt fyrir yfirvöld að ganga frá því sem óheppilegt slys.

Eða hvað?

Nokkur atriði virtust stinga í stúf við annars fullkomna frásögn eiginmannsins Harold. Þannig þótti það mjög \"\"grunsamlegt í hversu litlu uppnámi hann virtist vera, eftir að hafa horft uppá eiginkonu sína til 12 ára deyja í svo alvarlegu slysi. Þannig þótti hann bæði mjög yfirvegaður þegar björgunarfólk mætti á staðinn en ekkert síður í símtalinu við neyðarlínuna. Þá þótti sumt bera merki þess að hafa verið sviðsett. Til dæmis sýndi Harold mynd af konunni sinni, augnablikið áður en hún féll. Þá var hún að horfa á útsýnið með kíki. Kíkirinn fannst hins vegar aldrei.

Þegar kort fannst síðan í bifreið hjónanna, með merkinu ,,X” á staðnum þar sem Toni féll, var farið að ganga alvarlega á Harold. Smátt og smátt fór hann að gerast tvísaga um einstök atriði og var á endanum handtekinn. Í desember árið 2015, var Harold síðan dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt eiginkonu sína.

En sögunni lýkur þó ekki hér...

Við rannsókn á láti Toni, var farið að grafast aðeins fyrir um í fortíð Harolds. Kom þá í ljós að Toni var seinni eiginkonan hans, en sú fyrri, Sandra Lynn, hafði látist af slysförum. Rétt eins og þegar Toni lést, var Harold einn til frásagnar. Hann lýsti því sem svo að eftir að það sprakk á Cherokee jeppanum þeirra, lá Sandra undir bílnum þegar tjakkurinn féll og við það þungi bílsins ofan á hana. Sara lést á staðnum.

Þetta var árið 1995 og töldu yfirvöld ástæðu til að opna það mál til frekari rannsóknar, þegar lífstíðardómur Harold lá fyrir. Þótt það mál hafi ekki enn farið fyrir dóm, þykir það afar grunsamlegt að Harold fékk milljónir dollara greiddar í líftrygginu fyrir Söndru.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!