Cristiano ronaldo og alessandra ambrosio: sexý saman!

Það má spá tímariti GQ Body Issue góðu sölugengi í mánuðinum, því forsíðan þykir ein sú heitasta sem sést hefur í langan tíma. Reyndar þykir forsíðan svo sexý, að stjörnusíðan Hollywoodlife, segir hana kynþokkafyllstu forsíðu allra tíma! Á forsíðunni prýða Cristiano Ronaldo og Alessandra Ambrosio.
 
\"\"Alessandra Ambrosio er ein þekktasta fyrirsæta Victoria Secret undirfatalínunnar, en í þetta sinn lætur hún bikiníhaldaran flakka og er berbrjósta. Ronaldo, skýlir henni þó með líkama sínum, en þegar fleiri myndir eru skoðaðar, má segja að það sé Ronaldo sem fari alla leið!
 
Að sögn GQ segir Ronaldo í viðtalinu í blaðinu, að það geti vel verið að hann flytji sig einhvern tíman til Ameríku og spili þar, en eins og allir vita, er Ronaldo nú, leikmaður Real Madrid. Um Ameríku segir Ronaldo:
 
,,Kannski eru góðir möguleikar á því í framtíðinni að ég spili í Ameríku. Maður veit aldrei, en það gæti verið áhugavert. Ég myndi skoða það að sjálfsögðu, því eins og ég hef oft sagt, þá er fótbolti að verða betri og betri.....og þar af leiðandi teldi ég þetta möguleika.\"

Bandaríkjamenn eru auðvitað spenntir fyrir þessu, því ekki er svo langt síðan David Beckman fluttist búferlum til Bandaríkjanna í nokkur ár. En hér eru nokkrar myndir úr tökum fyrir blaðið. Þar sýnir Alessandra það auðvitað enn einu sinni, að þrátt fyrir að hafa verið fyrirsæta hjá Victoriu Secret frá árinu 2004, þá virðist hún aldrei eldast um dag!

\"\"

\"\"

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!