Brúðguminn var óþekkjanlegur! myndir

Það er til megrun sem eflaust þarf að teljast ,,alþjóðleg,” en það er ,,brúðkaupsmegrunin.” Já, þessi sem mjög margar, ef ekki flestar konur fara í mánuðina fyrir stóra daginn. Allt skal vera fullkomið á þessum degi, kjóllinn og útlitið.

En Zetan rakst á frábæra sögu af ungum manni sem margir þekktu ekki í brúðkaupinu. Það var á brúðkaupsdegi Matt og Hönnuh. Matt starfar sem kokkur. Eins og eflaust gerist með fleiri sem starfa í þeim geira, fóru aukakílóin að hlaðast utan um Matt. Áður en hann vissi af, var hann orðinn 155 kíló. Fyrir vikið fann Matt til orkuleysis, hafði lítið þol og var óánægður með sjálfan sig.

\"\"

Þegar Matt og Hannah höfðu ákveðið stóra daginn, lagði Hannah til að þau færu saman í átak. Myndu breyta matarræðinu, ekki bara þannig að Matt myndi léttast heldur vildi hún losna við einhver kíló sjálf.

 Og viti menn: Kílóin vægast sagt fuku af!

Þau gerðu þetta ekki með offorsi eða á stuttum tíma. Á 12 mánuðum, missti Matt 40 kíló og Hannah 20 kíló. Fyrst og fremst hættu þau í allri óhollustu. Skyndibitamatur, gos, nammi og fleira í þeim flokki fór hreinlega af matseðlinum. Ferskt og hollt hráefni var undirstaðan í öllum máltíðum og smátt og smátt fór vigtin að sýna árangur.

\"\"

 Við látum nokkrar myndir fylgja með en það fylgdi sögunni á vefsíðunni hitthenews að margir gestanna þekktu hreinlega ekki Matt þegar þeir mættu í brúðkaupið. ,,Hver er þessi maður?” spurðu einhverjir, þegar þeir gengu inn í kirkjuna og sáu þar fyrir Matt bíðandi eftir brúður sinni.

\"\"

 \"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!

\"\"Ekki missa af matarkeppninni miklu: Besti maturinn er á dagskrá kl.20 og kl.22 á miðvikudagskvöldum og endursýndur á fimmtudögum, á laugardagskvöldum kl.20 og á sunnudögum. Frábærir þættir þar sem þáttakendur keppast við að útbúa bestu máltíðina fyrir aðeins 3.000 krónur. Fylgstu með á Hringbraut!