Bróðir celine dion: á einhverjar klukkustundir ólifaðar

Heimurinn fékk þær fregnir í gær að eiginmaður söngkonunnar Celine Dion, René Angelil, væri látinn. Zetan sagði frá þessu, stuttu eftir að sönkonan birti stöðufærslu um lát hans á Facebooksíðunni sinni. Dion og Angelil voru saman í áratugi, en giftu sig árið 1994. Nú segir TMZ frá því að bróðir Celine Dion liggi fyrir dauðanum. Þannig bárust þær fregnir innan sólahrings frá láti Angelil, að bróðir Dion ætti aðeins örfáar klukkustundir ólifaðar.

Þetta er einn af eldri bræðrum Celine Dion, en hún er ein 14 systkina. Bróðirinn heitir Daniel og er 59 ára. Daniel hefur síðustu misseri, barist við krabbamein. Það hefur nú breitt úr sér um allan líkama og er meðal annars í heila, tungu og í hálsi. Eins og Zetan greindi frá í gær, lést René Angelil úr krabbameini í hálsi.

Í fréttum ytra kemur fram að fjölskylda Daniel sé nú hjá honum, þar sem búist er við því að hann kveðji þennan heim hvað úr hverju. Með systkinum og mökum, er móðir þeirra, sem er orðin 89 ára gömul. Dion ólst upp við nokkra fátækt. Í fjölmiðlum hefur hún þó oft sagt að hún hafi þrátt fyrir það, átt ánægjulega og þau systkinin verið hamingjusöm börn.

Það eru því vægast sagt erfiðir tímar hjá söngkonunni þessa dagana. Dion og René áttu saman þrjá drengi, sem allir eru frekar ungir. Sá elsti fæddist árið 2001, en árið 2010 eignuðust hjónin tvíbura. Hér að neðan má sjá mynd af bróður Daniel og Celine Dion annars vegar og fjölskyldumynd af Celine Dion og René Angelil hins vegar.

\"\"

 

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar allar helgar. Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!