Biðst afsökunar á hneykslinu

Klúðrið í Ungfrú Alheimur fór ekki framhjá neinum skömmu fyrir jól. Keppnin fór fram í Las Vegas í Bandaríkjunum og var kynnir Steve Harvey. Fyrir mistök, krýndi hann Ungfrú Kólumbíu sem sigurvegara. Krýningunni fylgdi auðvitað mikið lófaklapp, gleði og tár.

En gleðin var skammvinn, því eins og auðvitað komst í heimsfréttirnar, var þetta klúður hjá Harvey. Hann las vitlaust á kortið hjá sér, því sigurvegarinn í Ungfrú Alheimur árið 2015, var réttilega frá Filippseyjum.

Vandræðanlegt svo ekki sé meira sagt!

En úr öllu er auðvitað hægt að gera gott sjónvarpsefni, því nú bíður fólk spennt eftir þætti sem sýndur verður eftir helgi í bandarísku sjónvarpi. Sýnishorn úr þættinum hafa verið sýnd ítrekað síðustu daga, en í því sést Harvey biðjast afsökunar á hneykslinu.

Svo miður sín er hann, að TMZ segir að Harvey biðjist afsökunar með grátstaf í kverkum. Svo sterk viðbrögð voru við klúðrinu, að Harvey og fjölskyldan hans fengu líflátshótanir og hann gat ekki hleypt börnunum sínum út nema í fylgd fullorðinna. Þá segist honum hafa liðið svo illa, að hann hafi ekki getað sofið, en sem betur fer átt dyggan stuðning í eiginkonu sinni, sem studdi hann í gegnum erfiðleikana.

Í þættinum, er það Ungfrú Kólumbía, sem Harvey biður um að fyrirgefi sér, enda hafði hún stefnt Harvey fyrir 5 milljónir dollara vegna þess uppnáms sem hann olli henni. Væntanlega er afsökunarbeiðnin liður í því að ná sáttum í því máli, en þátturinn verður sýndur á mánudags- og þriðjudagskvöld á NBC.

\"\"

Hér er hin rétta Ungfrú Alheimur 2015 krýnd:

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar allar helgar. Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!