Barnið sem fæddist án augna - myndir

Ungi maðurinn brosir þegar hópur fólks klappar og hvetur hann áfram. Honum er ýtt áfram í hjólastól meðfram áhorfendastúkunnar á körfuboltaleiknum í háskólanum og það er pabbi hans sem stendur á bakvið hjólastólinn. Ungi maðurinn heitir Patrick Henry Hughes og á alla okkar aðdáun skilið.

Hann er barnið sem fæddist án augna.

\"\"

Patrick fæddist 10.mars árið 1988 og verður því 28 ára á þessu ári. Faðir Patricks og alnafni, lýsir fæðingardegi sonar síns svo:

,,Það var eins og óteljandi draumar yrðu að engu á einu augnabliki. Ég og konan mín vorum miður okkar. Hvers vegna? spurðum við. Og hvers vegna var þetta að gerast hjá okkur?”

Já, það fór ekki framhjá neinum þegar Patrick kom í heiminn, að það var eitthvað mikið að. Ekki aðeins varð ljóst að barnið var að hluta hreyfihamlað, heldur vantaði á það augu.

\"\"

En Patrick lét foreldra sína fljótt vita af því, að hann ætlaði sér ekki að láta fötlun sína hefta sig of mikið. Hann var því fjörmikill strákur strax á fyrstu árunum.

\"\"

Síðan gerðist undrið!

Einn daginn, stillti pabbi Patricks honum upp fyrir framan píanó. Og eins og foreldrarnir hafa lýst þeirri stundu í fjölmiðlum, er bara eins og eitthvað hafi ,,gerst” á því augnabliki.

Patrick byrjaði að spila á píanóið og það eins og einhver sem hafði bæði vit og þekkingu til þess. Já, tónlistin er hans náðargáfa svo ekki sé meira sagt.

\"\"

Næstu árin á eftir, naut Patrick þess til hins ýtrasta að spila á píanó hvenær sem færi gafst. Hann tók þátt í skólasýningum og ýmsum öðrum viðburðum og fór brátt að verða þekktur innan síns svæðis.

\"\"

Árið 2009, byrjaði Patrick í háskólanum í Louisville.

Og þá fékk hann nýja hugmynd.

Körfubolti var aðal sportið í skólanum og mikil stemning hjá bæði nemendum og áhorfendum yfir hverjum leik. Í þessari stemningu langaði Patrick að taka þátt í en hugsaði með sér: Ég verð þá að spila á eitthvað hljóðfæri!

Úr varð, að Patrick fór að spila á trompet og rétt eins og með píanóið, þá sannaaði hann það enn og aftur að hljóðfæri eru eitthvað sem hann virðist hafa verið fæddur til að spila á.

\"\"

Brátt fór Patrick því að taka þátt í að marsera um leikvöllinn, spilandi á trompet við mikla aðdáun áhorfenda og hlustenda. Pabbi hans tók þátt frá fyrsta degi og ýtti honum áfram í hjólastólnum fyrir hvern leik.

\"\"

\"\"

,,Hann er hetjan mín” segir Patrick eldri stoltur, þegar hann talar um þennan hæfileikaríka son sinn. Sjálfur segir Patrick um líf sitt:

,,Ég er blindur og get ekki gengið, hvað með það? 

En Guð hvað mér náðargáfu í tónlist og það hefur gefið mér frábær tækifæri til að kynnast nýju fólki.”

\"\"

Scribol

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!