Ástarsaga david bowie og iman

Tveimur dögum áður en David Bowie lést, átti hann afmæli og varð 69 ára. Iman, eiginkona Bowie, birti stöðufærslu á Twitter daginn eftir, sem flestir tengdu við afmælisdag söngvarans. En þegar fréttir bárust um lát Bowie, mátti sjá að eflaust var Iman með hugann við það, sem framundan var. Hún skrifaði

\"\",,Stundum áttar þú þig ekki á dýrmæti augnablika, fyrr en augnablikið er orðið að minningu.”

Þótt flestir, munu minnast Bowie sem goðsagnar í tónlist, munu einhverjir líka minnast ástar hans á eiginkonu sinni Iman. Bowie og Iman voru gift í 23 ár og notaði Bowie hvert tækifæri sem gafst, til að tjá Iman ást sína leynt og ljóst. Parið kynntist árið 1990 í sameiginlegu kvöldverðarboði vina. Bowie sagði frá því síðar í fjölmiðlum að fyrir hann hafi þetta verið ást við fyrstu sín.

,,Ég var farin að skíra börnin okkar í huganum, strax á fyrstu mínútunum sem við ræddum saman.”

Iman segir öðruvísi frá fyrstu fundum þeirra og viðurkennir að hún hafi ekki verið jafn viss og Bowie, þótt vissulega hafi hann heillað hana strax. Bowie var á þessum tíma þegar orðinn goðsögn í heimi tónlistar, en við Guardian sagði Iman í viðtali árið 2014:

 ,,Ég vildi ekki taka saman við rokkstjörnu. Ekki séns. Fannst það bilun. Fyrir hann var þetta augljóst, en sjálf var ég ekki tilbúin í samband.”

Bowie og Iman höfðu bæði verið gift áður en Bowie gafst ekki upp og gekk á eftir Iman hvað hann gat. Loks giftust þau árið 1992 og var athöfnin fyrst haldin í Sviss, en síðar endurtekin í Flórens á Ítalíu.

Iman hefur þó sagt, að ástin í lífi hennar hafi ekki verið söngvarinn David Bowie, heldur maðurinn David Jones sem hún lærði að þekkja svo vel. David Jones var hið rétta nafn David Bowie.

Eins og kunnugt er, lést David Bowie í kjölfar baráttu sinnar við krabbamein í lifri. Tilkynning um lát hans, birtist fyrst á Facebooksíðu Bowie, en þar kemur fram að Bowie hafi látist aðfaranótt 10.janúar og verið umkringdur sínum nánustu.

\"\"

Við mælum með: Ritstjórunum á Hringbraut í kvöld.

Fréttir líðandi stundar eru rædd í þættinum Ritstjórarnir með Sigmundi Erni á þriðjudagskvöldum. Þar ræðir Sigmundur Ernir við ritstjóra smærri fjölmiðla, um atburði líðandi viku. Verður lát David Bowie rætt í þætti vikunnar?

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!