Algjörlega bannað í hjónaherberginu: 7 atriði

Sumir sérfræðingar í ástarmálum og samböndum, segja tíman með makanum í hjónaherberginu einn þann mikilvægasta tíma sem pör þurfa að huga að. Hér er þó ekki verið að tala um kynlíf para, heldur ýmislegt annað sem skiptir máli og getur haft áhrif á sambandið. Huffingtonpost listaði upp 7 atriði, sem sögðu eru afar slæm fyrir öll pör.

Þetta er því bannlisti fyrir öll pör í hjónaherberginu.

1. Að fara of oft á mismunandi tíma að sofa.

Nei, réttari leið er að pör séu frekar samstíga um hvenær þau skríða upp í rúm, því oft eru það mínúturnar fyrir svefninn sem sem eru þýðingarmikil í einhverjum samskiptum para. Þá segja sérfræðingar einnig að ef pör venja sig á að fara sjaldan að sofa á sama tíma, þá verði það gjarnan að rútínu sem erfitt er að losa sig aftur úr, en rútínan myndar samt meiri fjarlægð á milli para.

2. Ekki hugsa bara útfrá sjálfum þér.

Hvort sem það er sjónvarpið í herberginu, ljósið vegna bókalestursins, tölvan eða síminn, skiptir miklu máli að sýna maka sínum þá tillitsemi að venjur komi ekki í veg fyrir að annar aðilinn geti sofnað.

3. Ekki segja ekki neitt.

Þótt þið séuð dauðþreytt, það sé ekkert að frétta eða ekkert sem þið þurfið að ræða neitt sérstaklega, þá er það samt góður siður að tala eitthvað við makan þegar verið er að fara að sofa. Það þarf ekki að vera mikið eða merkilegt, en að fara að sofa í þögn og ræða ekki saman, er eitthvað sem sérfræðingar mæla gegn.

4. Taktu makan framyfir Facebook, Twitter eða tölvupósta.

Láttu samneyti við makan þinn ekki vera í 2.sæti á eftir ofangreindu.

5. Notaðu hjónaherbergið ekki sem baðherbergi.

Ekki klippa táneglurnar, snyrta hár eða ráðast í einhverjar aðrar athafnir í svefnherberginu, sem að öllu jöfnu þú ættir að gera í einrúmi inni á baði. Það er ekkert rómantískt við það.

6. Ekki hunsa líkamlega nánd.

Ef kynlífið er að dofna eða áhugaleysið jafnvel orðið til þess að pör eru hætt að fara á sama tíma að sofa, þá er það greinilega vísbending um að parið ætti að ræða málin saman. Líkamleg nánd á að vera liður í því sem tengir ykkur saman í svefnherberginu.

7. Ekki fara reið að sofa.

Síðan er það gamla góða ráðið um að fara aldrei reið að sofa. Þessi setning er sögð af gefnu tilefni því allir ráðgjafar mæla með því að pör reyni sem best að leysa úr málum, áður en þau bjóða hvort öðru góða nótt.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!