Áhorfendur spyrja um reglur í fjöleignarhúsum

Að búa í fjöleignarhúsi getur kallað á ýmsar spurningar á meðal íbúa um hvað má og hvað ekki og um þetta er rætt í þættinum Afsal sem sýndur verður á Hringbraut í kvöld kl.21.30. Þá eru teknar fyrirspurnir frá áhorfendum Hringbrautar sem sendar hafa verið til Spyr.is og snúa að fjöleignarhúsum og húsfélögum. Meðal þess sem spurt er um er hver á að borga viðgerðir á bílskúr eða hurðum út á stigagang, hver gefur leyfi fyrir trampólíni í garðinn og hvaða reglur gilda um útlit á svalalokunum, sem á sumum blokkum geta verið afar mismunandi í útliti. Gestur þáttarins er Páll Þór Ármann hjá Eignaumsjón og hér má sjá stutt brot úr viðtalinu við hann, þar sem þáttastjórnandinn Rakel Sveinsdóttir spyr um svalalokanir.

Áhorfendur Hringbrautar geta sent inn fyrirspurnir um fasteignamál af ýmsu tagi með því að smella á SENDA SPURNINGU efst á vefsíðu Spyr.is, sjá HÉR.