Ætlar að mæta á óskarinn

Það fór varla framhjá mörgum þegar nokkrir þekktir leikarar tilkynntu á dögunum að þeir ætluðu ekki að mæta á Óskarinn árið 2016. Afföllin voru boðuð til að mótmæla þeirri staðreynd að annað árið í röð, væri enginn svartur leikari í röðum þeirra 20 einstaklinga, sem tilnefndir eru fyrir hlutverk sín í kvikmyndum. Eiginkona Will Smith, Jada Pinkett Smith, reið á vaðið og stuttu síðar leikstjórinn Spike Lee. Will Smith tilkynnti sín afföll nokkrum dögum síðar.

En akademían brást við.

Samkvæmt tilkynningu sem akademían sendi frá sér, er ætlunin að tvöfalda tilnefningar kvenna og minnihlutahópa, fyrir árið 2020. Þetta segist Will Smith afar sáttur við.

Í viðtali við BBC Breakfast, var hann spurður hvort lætin hefðu ekki bara verið vegna þess að hann væri spældur yfir því að fá ekki tilnefningu fyrir hlutverkið sitt í kvikmyndinni Concussion. Smith sagði svo ekki vera, enda málið mun stærra en að ræða það í samhengi við einstakar tilnefningar. Það að hluti þess hóps sem væri í akademíunni, fengi mun færri tilnefningar en aðrir, væri eitthvað sem þyrfti að skoða. Í því samhengi væri hann mjög sáttur við það markmið að tvöfalda fjölda kvenna og annarra minnihlutahópa á næstu árum. Það myndi þá ná vel til litaðra leikara, sem og margra annarra. Rolling Stones greinir frá.

Á mynd má sjá hjónin Will og Jada Smith, með vini sínum Spike Lee. Myndin var tekin í síðustu viku, þegar óróinn var hvað mestur vegna Óskarsins.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!