Æskuást: hittast á ný eftir 71 ár

Þau hafa verið aðskilin í 71 ár, en voru afar ástfangin þegar leiðir skildu. Þá stóð seinni heimstyrjöldin en þá yfir, en parið hefur ekki sést síðan árið 1945. Hann heitir Thomas og er 93 ára. Hún heitir Joyce og er 88 ára. Þegar Thomas og Joyce voru saman, starfaði hann sem fallhlífastökkvari í flughernum, en hún var í hjúkrunarnámi.

Þótt langt sé um liðið, hefur hvorugt þeirra neinu gleymt. Fór svo fyrir stuttu síðan að Thomas bað son sinn og vin hans, sem starfar sem blaðamaður, hvort þeir gætu fundið Joyce með tækni veraldarvefsins.

Hófst þá heilmikil rannsóknarvinna. Thomas býr nú í Bandaríkjunum, en Joyce fannst í Ástralíu. 

Nú hefur parið þegar hist á Skype, en samkvæmt vefsíðunni People, tóku um 300 manns sig saman og lögðu í púkkið og keyptu farmiða fyrir Thomas til Ástralíu. Skiljanlega, fer sonur hans með, enda Thomas orðinn háaldraður og löngu hættur að ferast langar vegalengdir einn og sér.

Thomas og Joyce völdu að hittast á Valentínusardaginn, sem verður þann 8.febrúar næstkomandi.

Hefði nokkur annar dagur komið til greina?

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!