Áður en afi dó

Oft er það þannig að börn nýrrar kynslóðar, fá allt of stuttan tíma með afa og ömmu. Að eiga myndir af afa og ömmu, verður því dýrmætasta eignin. Myndir sem sýna samverustundirnar, augnablikin sem voru of fá og koma ekki aftur. Stundum eru börn meira að segja það ung þegar amma og afi falla frá, að það eru eingöngu myndirnar sem liggja eftir til sönnunar fyrir þau sjálf, hversu náin þau voru ömmu og afa á sínum tíma.

Þess vegna eru myndir oft svo mikilvægar.

Zetan rakst á gullfallega myndaseríu, sem er góð áminning til okkar allra um að vera dugleg að festa augnablikin á mynd. Þetta á sérstaklega við um börnin okkar og þau augnablik sem við vitum að munu ekki vara nægilega lengi.

Samverustundir með ömmu.

Samverustundir með afa.

Eða jafnvel langömmu og langafa.

Konan sem birti þessa myndaseríu heitir Alina Gabrel-Kaminska. Myndirnar birti hún á vefsíðunni Boredpanda, þar sem fólki gefst tækifæri til að senda inn efni, sem það vill deila með öðrum. Alina segist hafa tekið myndir af samverustundum föður síns með börnunum sínum mjög markvisst. Með myndaseríunni segir hún:

,,Pabbi var ekki hinn fullkomni faðir. En hann varð hinn fullkomni afi.”

Myndir sem segja meira en þúsund orð.

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!