Adele bannar donald trump að nota músík frá sér

Nú er vægast sagt allt á fullu í kosningaherferð forsetaframbjóðenda og RÚV sagði frá því síðast um helgina, að Donald Trump væri sigurstranglegastur í röðum Repúblíkana. Ekki eru þó allir á eitt sáttir við Trump og þar á meðal söngkonan Adele.

\"\"Í myndböndum, á viðburðum og víðar, hefur Trump notað tónlist frá Adele sem undirspil. Eflaust enginn hissa á því, enda Adele án efa skærasta stjarna tónlistar í dag.

Aðdáendur Adele, hafa hins vegar velt því fyrir sér á samfélagsmiðlum, hvort Adele geri sér grein fyrir því að Trump er að slá um sig, meðal annars með hennar tónlist.

Að sögn Huffingtonpost, hefur Adele lýst því yfir að hún komi ekki nálægt pólitík og vilji engin afskipti af henni hafa. Þessu lýsti hún yfir í viðtali árið 2011.

En, Adele hefur þó stigið fram nú, því hún er búin að banna Trump að nota tónlist frá sér.

Og hún er ekki sú eina!

Steven Tyler, var heldur ekki ánægður með hvernig Trump notaði lagið hans ,,Dream On.” Hann lét því lögfræðingana sína hafa samband við Trump og banna notkun á tónlist eftir hann í kosningabaráttunni.

\"\"

Og þetta er ekki búið enn!

Söngvari REM, Michael Stipe, gekk skrefinu lengra. Hann sendi Trump tilkynningu hreinlega byrjaði á orðunum: 

,,Go f**k yourselves”

..... sem við treystum á að lesendur Zetunnar skilji. Ef við þýðum tilkynninguna hans lauslega, mætti segja að hún hafi verið svohljóðandi:

,,Ríddu þér í rassgat..., litli, sorglegi, athyglissjúki og valdasjúki maður. Ekki voga þér að nota rödd mína né tónlist í þessari blessuðu herferð þinni.”

Nú skal ekkert segja um hvort ofangreint hafi einhver áhrif á niðurstöður úr kosningum, en það má vera alveg ljóst, að menn eru greinilega mishrifnir af herra Donald Trump!

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!