Abba saman: opnuðu veitingastað í stokkhólmi

Ótrúlegt en satt: Meðlimir ABBA komu saman á dögunum, en það var til þess að opna veitingastað. Sá staður heitir Mamma Mia – The Party og er að sjálfsögðu hugmynd Björns Ulvaeus, söngvara og lagahöfundar. Sá var giftur hinni ljóshærðu Agnethu Faltskog.

Veitingastaðurinn er staðsettur á Nico’s Taverna í Stokkhólmi. Þar verður á boðstólnum grískur matur, tónlist og dans. Með þessu er verið að tengja veitingastaðinn beint við kvikmyndina Mamma Mia, sem væntanlega vel flestir ABBA aðdáendur hafa séð (og jafnvel mörgum sinnum!).

Meðlimirnir fjórir, voru allir saman komnir við opnunina, en neituðu þó að koma fram og taka atriði. Um þá fyrirspurn sagði Benny Andersson:

,,Þetta er ekki ABBA viðburður. Það er það ekki og ég upplifi þetta ekki þannig. En við skulum sjá til.\"

Fréttastofa Sky, sagði reyndar að Anni-Fri Lynstad, fyrrverandi eiginkona Benny, hefði tekið ágætlega í þá hugmynd að taka smá atriði. Þegar hún var spurð hvort hún myndi fara upp á svið, hló hún og svaraði:

 ,,Ég er nokkuð viss um að við endum öll þar.”

Agnetha Faltskog þótti líka endemum hress við opnunina. Henni fannst staðurinn dásamlegur og kímdi við þegar hún sagðist þekkja tónlistina sem þar er spiluð.

Hér eru nokkrar myndir frá opnuninni og af staðnum.

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

ABBA meðlimirnir hafa ekki komið saman opinberlega síðar árið 2008. Hljómsveitin hætti árið 1982, en þá höfðu þau verið saman í 10 ár. Þau vöktu fyrst heimsathygli þegar þau unnu Eurovision árið 1974.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!