9 dæmi um fólk sem fannst áratugum eftir að það hvarf

Í bíómyndum og sjónvarpsþáttum sjáum við að fyrstu 48 klukkustundirnar eftir að einstaklingur hverfur, eru sagðar þær mikivægustu. Ef viðkomandi finnst ekki á þeim tíma, dofna allar líkur á að viðkomandi finnist, að minnsta kosti á lífi. En þó eru fjölmargar sögur til af fólki sem hefur týnst en fundist aftur mörgum árum síðar. Þetta eru ólíkar sögur en gætu allar staðið sig sem þrælspennandi sjónvarpsefni, hver saga fyrir sig. Rennum hér yfir nokkur dæmi sem vefsíðan Scribol tók saman.

Týnd í 50 ár.

\"\"Linda Evans var aðeins 8 ára gömul þegar móðir hennar, Lucy Ann Johnson, yfirgaf heimili og fjölskyldu. Þetta var í Kanada árið 1961. Móðirin hvarf með öllu því frá henni heyrðist hvorki hóst né stuna næstu árin á eftir. Linda taldi því alltaf að móðir sín væri látin. En um hálfri öld síðar, fór hún samt að velta því fyrir sér hver örlög móður hennar hefðu verið í raun? Hún nýtti sér því nútímatæknina til að reyna að grennslast fyrir um hvað hefði orðið um mömmu sína. Meðal annars birti hún auglýsingu í dagblaði. Margir höfðu samband en allar vísbendingar reyndust úr lausi lofti gripnar. Þar til einn daginn að Linda fékk símtal frá konu, sem sagðist halda að hún væri hálfsystir hennar. Það reyndist rétt og haustið 2013, hitti Linda loks móður sína eftir ríflega hálfrar aldar aðskilnað. Mamma hennar sagðist hafa flúið heimilið á sínum tíma, vegna heimilisofbeldis.

Ung og ástfangin og týnd í áratugi.

\"\"Þegar Rachel Elkayam var 16 ára, var hún yfir sig ástfangin og stalst loks til að flýja að heiman og til fjölskyldu draumaprinsins. Þetta var í Ísrael árið 1947. Þegar unga stúlkan var síðan orðin kasólétt, lést kærastinn. Fjölskyldan hans heimtaði þá að hún myndi giftast öðrum syni þeirra og um það leyti fluttust þau líka öll til Sýrlands. Þar bjó Rachel við mikla óhamingju í áratugi. Hún reyndi ítrekað að koma bréfum og upplýsingum heim til Ísraels en án árangurs: Hún var eins og fangi tengdafjölskyldunnar. Loks kom að því að eitt barnabarna hennar ákvað að reyna að hafa uppá fjölskyldu ömmu sinnar. Það tókst og þegar Rachel var 85 ára, sneri hún loks heim.

\"\"Beinin í bakgarðinum.

Árið 1996 fundust mannabein í bakgarði í Illinois í Bandaríkjunum. Var talið nokkuð víst að þetta væru leifar Lulu Coru Hood, sem hafði horfið árið 1970,. Eftir stóð dóttir hennar, Grace, sem var aðeins 15 ára gömul. En DNA próf sýndu að líkamsleifarnar voru ekki af Lulu. Fór svo að mál Lulu var opnað aftur og leiddi sú rannsókn til þess að Lula fannst loks í Flórída árið 2011. Þá var hún orðin 84 ára, hafði eignast fjöldan allan af börnum en glímt við miklar geðraskanir allt sitt líf. Grace hitti þó mömmu sína eftir fjörtíu ára aðskilnað en það af hverjum beinin í bakgarðinum voru, er enn ráðgáta.

\"\"Týnd og talin myrt: Sneri aftur án skýringa.

Petra Pazsitka var 24 ára þegar hún hvarf frá heimavist háskólans í Braunschwig í Þýskalandi árið 1984. Mikil leit skilaði engu næstu vikur og mánuði og loks var Petra úrskurðuð látin árið 1981. Þá hafði nemi í húsasmíði játað að hafa myrt hana, auk annarrar táningsstúlku. En ríflega þrjátíu árum síðar, dúkkaði Petra upp aftur, sprelllifandi og hress. Hún var þá orðin 55 ára og sagðist hafa skipulagt hvarf sitt lengi á sínum tíma. Þannig lagði hún fyrir pening með það að markmiði að segja skilið við gamla vini og vandamenn og hefja nýtt líf. Petra skýrði þó aldrei út hvers vegna hún hefði farið.

Afi og amma stálu drengnum.

\"\"Richard Wayne Landers Jr. var 5 ára þegar foreldrar hans stóðu í harkalegum forræðisdeilum í kjölfar skilnaðar. Mamma hans var atvinnulaus og bjó með hann í bíl. Staða föður hans var ekki mikið skárri. Afi og amma Richards höfðu því miklar áhyggjur af drengnum og hvernig færi fyrir honum. Fór svo að þau tóku drenginn og hurfu sporlaust. Richard fannst síðan undir öðru nafni tveimur áratugum síðar. Richard var þó ekki ánægður með þá opinberum og sagði að sér hefði í rauninni verið bjargað af ömmu sinni og afa á sínum tíma.

Týndur og týndist aftur í fyrra.

\"\"Carlos Sanches Ortiz de Salazar hvarf sporlaust árið 1996. Hann þjáðist af þunglyndi og taldi fjölskyldan hans nokkuð víst að hann hefði tekið sitt eigið líf. Carlos var loks úrskurðaður látinn árið 2010. Í fyrra, rákust tveir sveppatýnslumenn í Tuscany á Ítalíu hins vegar á mann sem bjó einn og sér úti í náttúrunni. Hann sagðist vera Carlos og sýndi þeim gamalt bókasafnsskírteini. Mennirnir tóku myndir af skírteininu og fljótlega kom í ljós að þetta var Carlos eftir allt saman. En áður en foreldrar hans náðu að hitta á hann, hvarf Carlos á ný og telst því enn týndur en þó ekki látinn.

Mundi ekki neitt í 30 ár.

\"\"Edgar Latulip var aðeins 21 árs þegar hann hvarf árið 1986. Þetta var í Kanada og stuttu áður hafði Edgar reynt að taka sitt eigið l´lif. Honum hafði alltaf gengið illa í skóla og átti erfitt með að fóta sig. Því töldu menn fljótt að Edgar hefði náð tilætlunarverki sínu og horfið í kjölfar sjálfsvígs. En mörgum árum síðar, leitaði fimmtugur maður til félagsmálayfirvalda í Ontario og sagðist vera að upplifa minningar aftur úr tímanum, sem hann væri ekki alveg viss um hverjar væru. Úr varð að DNA sannaði að þarna var Edgar fundinn og telja læknar að hann hafi þjáðst af alvarlegu minnisleysi í 30 ár.

Forræðisdeila í 20 ár.

\"\"Þegar Savanna Harris Todd var rétt eins árs gömul, hvarf hún af heimili afa sinnar og ömmu. Þetta var í Suður Karólínu í Bandaríkjunum. Móðirin lá strax undir grun. Hún átti við alvarlegar geðraskanir að stríða og hafði staðið í harðri forræðisdeilu við barnsföður sinn í nokkurn tíma. Eftir að bæði hún og dóttirin hurfu, leitaði pabbinn af dóttur sinni í mörg ár. Til þess réði hann einkaspæjara og gaf aldrei upp vonina á því að hitta dóttur sína á ný. Loks bar leitin árangur en þá höfðu mæðgurnar búið víðs vegar um heiminn: í Suður Afríku, Nýja Sjálandi og loks Ástralíu þar sem Savanna fannst. Hún hitti föður sinn en hefur alltaf haldið tryggð við móður sína. Móðirin þurfti samt að sitja inni í 4 mánuði fyrir mannrán.

,,Sé ykkur í kvöld” en síðan liðu 27 ár.

\"\"Einn morguninn í október árið 1990, kvaddi Winston Bright eiginkonu sína og þrjú börn áður en hann hélt til vinnu. Þetta var venjulegur dagur og kvaddi Winston fjölskylduna sína með þeim orðum að hann sæi þau aftur um kvöldið. En Winston hvarf sporlaust þennan dag og þrátt fyrir mikla leit, fundust engar vísbendingar um hvað hefði orðið um Winston. Rúmum tuttugu árum síðar var hann úrskurðaður látinn svo eiginkonan hans gæti fengið greitt úr lífeyrissjóðnum hans. Árið 2007 dúkkaði Winston hins vegar upp. Hann sagðist hafa misst minnið en var kominn aftur og ætlaði líka að fá greitt úr lífeyrissjóði sínum. Synir hans voru hins vegar ekki sannfærðir um að þetta væri pabbi þeirra og það sama átti við um dómaran, sem sagði Winston ekki getað sannað með fullnægjandi hætti að hann væri í raun Winston. Fór svo að ókunnugi maðurinn fékk ekki persónuauðkenni Winstons og telur fjölskyldan hans hann því enn ófundinn.

 \"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!