9 atriði sem margir vita ekki um díönu prinsessu

Þótt Díana prinsessa hafi látist árið 1997, er hún enn dýrkuð og dáð um allan heim og ekkert lát virðist á vinsældum hennar. Um hana er enn skrifað á síður fjölmiðla, um hana hafa verið gefnar út bækur, heimildarmyndir og nú síðast kvikmynd. Þó er það ýmislegt sem fáir vita um Díönu. Hér er þá ekki verið að vísa í átröskunina, sem Díana opinberaði sjálf, þunglyndið sem hrjáði hana eða velt upp spurningu um hvort hún hafi verið í bílbelti eða ekki, þegar hún lést í bílslysinu á sínum tíma. Allt teljast þetta upplýsingar, sem margir vita nú þegar hvort eð er.

En vissuð þið þetta?

1. Lét taka út orð í hjónaheiti sínu við Karl prins.

\"\"Á ensku, hefur brúðurin eftir prestinum þá setningu að hún heiti því að ,,hlýða” eiginmanni sínum. Orðið er ,,obey.” Díana sagði hins vegar aldrei þetta orð, heldur óskaði eftir því að það yrði fjarlægt. Þetta olli smá uppnámi á sínum tíma, en Díana fékk sínu framgengt.

Það er líka gaman að segja frá því, að árið 2011, þrjátíu árum eftir brúðkaup Díönu og Karls, gerði Kate Middleton það sama, þegar hún gekk að eiga son þeirra, Vilhjálm prins.

2. Gekk ekki mjög vel í skóla.

Díönu gekk ágætlega í skóla, en það var þó mismunandi eftir fögum. Þannig gekk henni ekkert sérstaklega í bóklegum fögum, en íþróttir, tónlist og ýmiss verklegri fög, lágu betur fyrir henni.

3. Drottningin var ekki hrifin af AIDS góðgerðarstarfi Díönu.

Uppúr 1980, var hræðslan við AIDS, eða HIV veiruna, mun meiri en hún er í dag. Díana lagði þessu málefni hins vegar lið, enda góð vinkona söngvara Queen á þessum tíma. Elísabet drottning, var þó lítt hrifin og lagði til að hún veldi sér eitthvað þægilegra málefni.

\"\"4. Trúlofunarhringurinn keyptur úr sölubækling.

Trúlofunarhringur Díönu var dýr, kostaði 42 þúsund pund á sínum tíma. Hins vegar var hann ekki keyptur í verslun, heldur pantaður úr breskum sölubækling sem heitir Garrard.

Vilhjálmur prins, gaf Kate Middleton síðan þennan hring, þegar hann bað hennar.

5. Var guðmóðir 17 barna

Það vita ekki margir að Díana var guðmóðir 17 barna. Börnin voru mörg hver börn fólks sem Díana þekkti úr hinum breska aðli, en það var þó ekki algilt. Sem dæmi má nefna, var Díana guðmóðir blaðamanns, sem á dóttur með Down heilkenni.

6. Var ósátt við móður sína þegar hún lést.

\"\"Þegar Díana lést, vissu það fáir að hún hafði ekki talað við móður sína í nokkra mánuði. Móðir hennar er sögð hafa verið ósátt við skilnað Díönu við Karl bretaprins, en ekkert síður ósátt við þá menn sem Díana var síðar sögð í tygjum við.

7. Á forsíðumet tímaritsins People.

Díana birtist á forsíðu tímaritsins People í alls 55 skipti, sem er oftar en nokkur annar. Til samanburðar má nefna að þótt fjölmiðlar hafi fylgst með Vilhjálmi prins frá fæðingu, hefur hann aðeins birst í um 30 skipti á forsíðu sama tímarits.

8. Sagði engum kynið þegar hún var ólétt af Harry.

Þegar Díana gekk með yngri soninn Harry, vissi hún sjálf kynið en kaus að segja engum það. Þannig vissi Karl prins fyrirfram að frumburðurinn yrði drengur, en þurfti að bíða eins og aðrir, þar til Harry fæddist.

9. Brúðarkjóllinn eyðilagðist næstum því á brúðkaupsdaginn.

Brúðarkjóll Díönu var vægast sagt glæsilegur en mikil mildi þótti að hann eyðilagðist ekki á sjálfan stóra daginn. Það var vegna þess að enginn hafði gert ráð fyrir því að Díana færi til kirkju, í litlum gullvagni eins og hún gerði þegar kom að stóru stundinni. Sumir vilja meina að ummerki þrengslanna hafi verið sýnileg þegar Díana gekk inn St. Pauls kirkjuna, því slörið þótti frekar krumpað.

Meira má lesa um Díönu á vefsíðunni Scrabol.

\"\"

 

Við mælum með á Hringbraut: 

Tveir frábærir þættir á dagskrá á miðvikudögum sem þú vilt ekki missa af! Keppnin Besti maturinn með Völu Matt og Heilsuráð Lukku. Fylgstu með frá kl.20 á miðvikudagskvöldum á Hringbraut.

\"\" 

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!