8 stjörnupör sem hafa hætt saman en byrjað saman aftur

Fræga fólkið fer auðvitað í gegnum hæðir og lægðir eins og aðrir og tímabundnir skilnaðir því jafn algengir hjá fræga fólkinu og hverjum öðrum. Í vikunni hafa stjörnumiðlar beint sjónum sínum að Miley Cyrus og Liam Hemsworth, sem tóku saman á ný fyrir stuttu, eftir að hafa hætt saman árið 2013. Fréttir um þekkt fólk sem skilur tímabundið og tekur saman aftur, er þó eitthvað sem heimsbyggðin er ekkert óvön að fara í gegnum og Zetan ákvað því að taka saman 8 dæmi um stjörnupör, sem hafa skilið.... en náð saman á ný.

#1. Patrick og Jillian Dempsey.

Í janúar árið 2015, sótti Jillian Dempsey um skilnað við Patrick, en þau höfðu þá verið gift í 15 ár. Hún dró hins vegar skilnaðarumsóknina til baka og að sögn People, hafa þau allt síðasta ár, verið að vinna að því að rækta sambandið.

\"\" 

#2. Justin Timberlake og Jessica Biel.

Árið 2011, hættu Justin Timberlake og Jessica Biel saman. Í dag eru þau hins vegar gift og eiga saman eitt barn.

 \"\"

#3. Pink og Carey Hart.

Söngkonan Pink og Carey Hart hafa verið saman og í sundur frá því að þau kynntust árið 2001. Þau skildu formlega skiptum árið 2008 og höfðu þá verið gift í tvö ár. Fljótlega tóku þau hins vegar saman aftur og eiga nú 4 ára gamla dóttur.

 \"\"

#4. Vilhjálmur prins og Kate Middleton.

Það eru auðvitað flestir búnir að gleyma því að Vilhjálmur prins og Kate Middleton hættu saman í um hálft ár árið 2007. Hins vegar hefur það ekki farið framhjá neinum að í dag eru þau gift og eiga saman tvö börn.

 \"\"

#5. Snoop Dogg og Shante Tayler.

Þau byrjuðu saman þegar þau voru í gagnfræðiskóla og hafa því verið saman í 25 ár. Á þessum tíma hafa þó komið tímabil, þar sem parið hefur skilið skiptum um hríð.

\"\" 

#6. Rhea Perlman og Danny Devito.

Þau hafa verið gift í yfir 30 ár, en haustið 2012 skildu Rhea og Danny. Aðdáendum þeirra til mikillar ánægju, tóku þau hins vegar aftur saman nokkrum mánuðum síðar.

 \"\"

#7. Kylie Jenner og Tyga.

Slúðurpressan fylgist með Kylie Jenner við hvert fótmál og um tíma fóru aðdáendur í gegnum nokkra daga sambandsslit, en það var í nóvember á síðasta ári. Útlitið virtist svart og sambandið búið, þegar Kylie uppýsti aðdáendur um að þau væru tekin saman nokkrum dögum síðar.

 \"\"

#8. Miley Cyrus og Liam Hemsworth.

Og þá er það nýjasta parið, Miley og Liam, sem tóku saman aftur nokkrum vikum fyrir jól, frá því að hafa verið skilin skiptum frá árinu 2013. Eins og Zetan hefur þegar greint frá, flutti Miley til Liam í vikunni og þau eru aftur búin að setja upp trúlofunarhringana.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

 

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!