4 ástæður fyrir því að þú finnur fyrir þreytu daglega

Þegar sólin er lengi að koma upp og fljót að fara aftur niður þá getur verið auðvelt að finna til þreytu og þá daglega. Við á Zetunni fundum aðferðir með aðstoð skinnymom.com til að ráðast gegn þreytunni og mælum með að þið lesið yfir. 

 

1. Skrifborðsstóllinn þinn

Samkvæmt Dr. Frank King þá telur hann að sitja til lengri tíma slakar á líkama þínum og dregur fram þreytuna. Skortur á hreyfingu dregur úr súrefnisflæði til heilans,
hint: stanslaust geisp!
Gott ráð er að taka smá göngu. Rannsóknir sýna að með því að standa upp og hreyfa þig gefur þér orku sem endist þér í allt að tvo klukkutíma. Dr. King segir að gangan sé einfaldasta lausnin,10 mínútna göngutúr eykur blóðflæðið, lækkar blóðþrýsting og mun samstundis fríska þig ásamt því að skila þér til vinnu mun endurnærðari og til í daginn. 
 
\"\"
 

2. Óreiðan á skrifborðinu þínu. 

Óreiðan sjálf er ástæðan fyrir því að þú finnur til þreytu. Ekki bara er minna pláss fyrir vinnunna þína, heldur er óreiðan einnig að stara á þig og minna þig á hundrað hluti sem þú átt eftir að gera. Heilinn nær því ekki að einbeita sér að því verkefni sem er fyrir framan þig. Rétt eins og svefnherbergið ætti að vera bara fyrir svefn og kynlíf þá á skrifborðið þitt einungis að ætlað því verkefni sem þú ert að vinna að þessa stundina, allt annað er að trufla þig. 
 \"\"

 

3. Morgunmaturinn

Fyrsta máltið dagsins hefur áhrif á orku þína út daginn. Ef hann er of stór er líklegt að þú finnir fyrir þreytt og ef þú borðar ekkert fá efnaskipti líkamans ekki þau skilaboð að vakna. Fólk sem borðar vel samsettan morgunmat hefur meiri orku, framkvæma betur og sofa betur, sem hefur einnig þau áhrif að þau vakna daginn eftir orkumeiri. 

\"\"

 

4. Vatnsskortur

Það eru góðar líkur á því að líkami þinn sé með vantsskort akkúrat núna. Líkaminn heldur í öll eiturefnin í líkamanum þegar honum vantar vökva, sem getur aukið líkur á því að þú finnir til þreytu. Líkaminn er 60% vatn og því skiljanlegt að hann nái ekki fullri starfsorku í vatnsskorti. Góð lausn er að fá sér eitt glas eða tvö af vatni til að hressa sig við, annars er mælt með því að drekka 8-9 glös af vatni á dag. Einnig er hægt að fá sér vatnsmelónu með til að gleðja bragðlaukana enda er hún 91% vatn. 

 \"\"
 

 

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!