5 mánaða grét og grét en sjáið hvað var að hrjá barnið (mynd)

Það eru myndir sem hefur gengið víða á veraldarvefnum síðustu daga, sem eflaust er ágætt fyrir marga foreldra að sjá. Myndirnar sýna sár á tá ungabarns, sem er að verða 5 mánaða gömul. Barnið er stúlka, Molly, sem fæddist í september síðastliðinum. Foreldrar hennar búa í Kansas í Bandaríkjunum. Þau lentu í atviki á dögunum, sem þau ákváðu að segja frá á Facebook. Í ljós hefur komið síðan þá, að þetta er eitthvað sem er algengara en fólki grunar og því ágætt að deila með ykkur.

Þannig var að fjölskyldan var á veitingastað í hádeginu að borða. Molly fer þá að gráta linnulaust og fóru foreldrarnir í gegnum það helsta til að sefa grátinn. Allt kom þó fyrir ekki. Molly litla grét og grét.

Mamma hennar fann síðan að henni var allri farið að hitna og tók hana þá úr sokkunum. Þá sá hún að hár var vafið um eina tánna og það svo fast að skarst í húð barnsins.

Foreldrarnir losuðu auðvitað strax um hárið og Molly fór við það að líða betur og hætti að gráta. Pabbi Mollyar, Scott Walker, birti mynd af tánni á Facebook og bað foreldra að vera vakandi yfir því að eitthvað sambærilegt gæti gerst. Þannig eiga ungabörn það til að vefja um tær eða fingur, spotta, hár eða bönd sem þau komast í. Á endanum fer bandið að skerast í mjúka húð barnsins og meiðir.

\"\"

\"\"

Á vefsíðunni Buzzfeed segir læknir að í verstu tilfellum, getur þurft að grípa til aðgerðar eða jafnvel að fingur eða tá skaðist varanlega. Það er vegna þess að húð, vöðvar og bein í ungabörnum eru enn svo mjúk á þessum aldri. Á ensku eru svona atvik kölluð ,,hari tourniquet.”

\"\"

Þar sem við þekkjum það flest, hvernig ungabörn geta hreyft fætur og hendur endalaust í ,,hringi,” er í rauninni ekki erfitt að sjá fyrir sér hvernig þetta hefur gerst. Í umræddri grein á Buzzfeed, segir að svona vafningur geti til dæmis átt upptök sín vegna spotta sem er innan í sokkum ungabörns. Því ágætt fyrir foreldra ungra barna að hafa þetta í huga.

Sem betur fer, var sárið fljótt að gróa á Molly. Sem auðvitað brosir í dag sínu blíðasta....

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!