5 atriði sem gætu hjálpað þér við að standa við áramótaheitin

Jæja, nú er vel liðið á janúarmánuð og farið að reyna á það hjá mörgum að halda sig við áramótaheitið. Við erum þá að tala um áramótaheitið sem fólst í því að breyta um lífstíl, ná af sér nokkrum kílóum og vera dugleg(ur) að mæta í ræktina. En hér eru nokkur atriði sem geta kannski hjálpað.

#1. Þú ert ekki ein/einn í baráttunni.

Þú getur verið viss um að það eru margir í sömu stöðu og þú, settu sér markmið í upphafi árs og eru í vandræðum með að halda þetta út. En vittu til: Ef þér tekst það, þá verður þú eins og þeir sem blómstra af ánægju síðar á árinu, því þeir gáfust ekki upp!

\"\"#2. Markmiðið þarf að vera mælanlegt.

Vertu viss um að markmiðið þitt sé bæði skýrt og mælanlegt. Ef markmiðið er til dæmis 10 kíló á 6 mánuðum, brjóttu það þá niður í einingar: Hvað þýðir þetta mikið á viku eða mánuði? Hvað gerir þú á hverjum degi, til að færa þig nær markmiðinu? Ertu búin(n) að skrifa niður markmiðið þitt og hvernig þú ætlar að ná því? Ef ekki, skaltu skrifa það niður strax í dag og hafa það við hendina.

Það getur líka verið ágætt að finna mynd af þér, þar sem þú varst í flottu formi og/eða í þeirri þyngd sem þú sækist eftir nú. Hafðu þessa mynd nálægt þér og skoðaðu hana reglulega. 

#3. Talaðu við vin.

Það gengur betur að ná markmiði, ef þú finnur þér félaga. Þetta geta verið félagar í ræktinni eða vinir innan fjölskyldu- og vinahóps. Einhverjir sem ætla sér það sama og þú og eru til taks til að ræða um árangur og markmið.

#4. Verðlaunaðu sjálfan þig.

Búðu til gulrót fyrir sjálfan þig til að verðlauna þig með. Verðlaunin eru EKKI matur, en getur verið eitthvað annað. Nýr bolur? Bíóferð? Bók?

#5: Þarftu að breyta einhverju í átakinu? 

Hvernig hefur gengið í janúar? Hvað finnst þér leiðinlegt/skemmtilegt? Gæti það virkað betur að fara á lokað námskeið? Farðu í gegnum það sem hefur gengið vel eða illa það sem af er mánuðinn. Skrifaðu þetta niður og reyndu að bæta þau atriði sem þú finnur að eru ekki að ganga upp. Hugsaðu í lausnum. Það er til dæmis lykilatriði að finna sér hreyfingu við hæfi, eitthvað sem þér finnst skemmtilegt frekar en leiðinlegt. Ef þér finnst til dæmis erfiðast að koma þér af stað, er spurning um að finna einhvern sem mætir á sömu tímum og þú (það hjálpar oft!) eða að búa til einhverja gulrót fyrir þig, þannig að það sé líklegra að þú farir örugglega af stað. 

Baráttukveðjur frá Zetunni!

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!