36 ára og dauðvona, en sjáið hver hinsta óskin hans var...

Læknar standa frammi fyrir erfiðum veikindum og jafnvel dauða dag frá degi. Þeir eru samt upp til hópa nákvæmlega eins og annað fólk: Við höldum að ,,ekkert” gerist hjá okkur. Þannig var lífið hjá Paul Kalanithi lækni. Hann útskrifaðist frá Stanford háskólanum í Kaliforníu, þar sem hann kynntist konunni sinni, Lucy. 

\"\"Lífið brosti við unga parinu. Þau voru ástfangin, kláruðu námið og fengu bæði góða vinnu eftir útskrift.

Þegar Paul var 36 ára, fékk hann hins vegar vondar fréttir: Hann var með lungnakrabbamein. Krabbameinið greindist á alvarlegasta stigi og því varð Paul og Lucy fljótlega ljóst, að Paul ætti ekki mikinn tíma eftir.

Lucy spurði Paul strax ,,Hvað langar þig að gera, þennan tíma sem þú átt eftir ólifaðan? Hvað viltu að ég geri? Viltu ferðast, eða viltu....”

Paul sagði Lucy að fyrst og fremst vildi hann að þau verðu eins miklum tíma saman og þau gætu. Eitt af því fyrsta sem þau ákváðu að gera, var að fara aftur á sama stað og þau ferðuðust á, þegar þau fóru í brúðkaupsferð. Síðan héldu þau aftur heim og lögðu mestu áhersluna á að vera \"\"með sínum nánustu.

En Paul átti sér eina ósk.

Þetta var hans hinsta ósk og ekkert sem hann vildi fremur.

,,Getum við eignast barn?”

Lucy viðurkennir, að í fyrstu vissi hún ekki alveg hvernig hún átti að bregðast við. Hún hafði áhyggjur af því að það að eignast barn, yrði jafnvel erfiðari fyrir Paul, vitandi að \"\"hann yrði ekki til staðar. En Paul var ákveðinn.

Paul lést þann 9.mars árið 2015. Þá höfðu þau hjónin eignast dóttur og það sem meira var: Paul hafði skrifað bók. Sú bók heitir ,,When Breath Becomes Air” og endaði sem metsölubók í Bandaríkjunum. Þar lýsir Paul þeirri upplifun sem felst í því að vera deyjandi. Hann skrifar líka um, hvers vegna hinsta óskin var að eignast barn. Á öftustu síðu bókarinnar, eru skilaboð fyrir dótturina til að lesa þegar hún er orðin eldri.

Skilaboðin eru:

,,Á dánarlegunni minni, veittir þú mér meiri hamingju en ég vissi að væri til. Ég er ekki ósáttur við að kveðja, því ánægjan sem hefur falist í því að vera með þér, hefur gert mig sáttan og sælan. Það sem þú gafst mér, var stórkostlegt.\"

\"\"

 

Scribol

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!