Við Íslendingar kunnum sannarlega að meta góða slagara og sérstaklega þegar þeir minna okkur á sumarið. Nú er komin safnplata með 30 bestu ferðalögum KK og Magga Eiríks, eina platan sem þú þarft fyrir sumarið og útileguna.
Það er hann Höskuldur Höskuldsson hjá HH hljómplötur sem gefur út safnplötuna. Höskuldur er vel þekktur í útgáfubransanum á Íslandi, vann lengi vel hjá Senu og því enginn nýgræðingur. Safnplatan er unnin uppúr þeim ferðalaga hljómplötum sem KK og Maggi Eiríks hafa gefið út síðustu misseri við miklar vinsældir og seldust í mörgþúsund eintökum.
Safnplatan kom út 21.apríl síðastliðinn, sumardaginn fyrsta.
Á plötunni er að finna þessi lög:
1. Ég er kominn heim
2. Fram í heiðanna ró
3. Þórsmerkurljóð
4. Einu sinni á ágústkvöldi
5. Viltu með mér vaka
6. Litla sæta ljúfa góða
7. Undir bláhimni
8. Nú liggur vel á mér
9. Ó, María mig langar heim
10. Brúnaljósin brúnu
11. Sestu hérna hjá mér ástin mín
12. Ég veit þú kemur
13. Senn fer vorið
14. Ó, nema ég
15. Komdu inn í kofann minn
16. Kveikjum eld
17. Kötukvæði
18. Komdu og skoðaðu í kistuna mína
19. Einbúinn
20. Minning um mann
21. Ennþá man ég hvar
22. Ó, Jósep, Jósep
23. Sigling (Blítt og létt)
24. Hreðavatnsvalsinn
25. Litla flugan
26. Maistjarnan
27. Dalakofinn
28. Ljúfa Anna
29. Kvöldið er fagurt
30. Dagný
Hægt er að festa kaup á geisladisknum í öllum helstu verslunum.
Við á Zetunni kunnum vel að meta íslenska tónlist, enda stillum við að venju alltaf á Eyfa alla virka morgna á Útvarp Hringbraut kl.9 til 11 þar sem hann spilar einungis íslenska tónlist og fjallar um íslenskt tónlistarlíf. Þar sem þessi lög fá að hljóma með í sumar.
Vertu vinur Zetunnar á Facebook og taktu þátt í léttum sumarleik þar sem við gefum 3 heppnum vinum nýju safnplötuna. KK & Maggi Eiríks 30 vinsælustu ferðalögin.