24 klst eftir fæðingu: svona lítur líkaminn út (mynd)

Mynd af Facebook er að vekja mikla athygli á netinu. Hún er af konu, sem tekur mynd af sér, sólahringi eftir að hafa fætt barn. Með myndinni skrifar hún ,,Svona lítur líkaminn út 24 klukkustundum eftir fæðingu.” Síðan segir hún:

 ,,Mér finnst eins og líkaminn hafi farið í gegnum maraþon og að hjarta mitt sé galopið eftir áreynslu gærdagsins. Fæðing opnar okkur konurnar eins og jarðskjálfti opnar jörðina og ég finn að ég er enn að jafna mig, viðkvæm og aum. Svolítið tóm. Tilfinningasöm. Eitthvað breytt.”

Myndin og stöðufærslan vakti að vonum strax athygli enda geta eflaust flestar mæður í heiminum, tekið undir þessi orð Andrews. Á Huffingtonpost kemur fram að þetta var fimmta barn hennar, sem hún segir að verði sitt síðasta.

,,Þetta er í síðasta sinn sem ég á eftir að upplifa allar þessar brjálæðislegu breytingar og miklu tilfinningar,” sagði Andrews við blaðið og vísar þar til þeirrar upplifunar sem það er fyrir konur, að ganga með og fæða börn.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!