23 ára og varð bæði pabbi og afi á innan við viku

Fyrir aðeins rúmu ári, var hinn 23 ára gamli Tommy Connolly ekkert í ósvipaðri stöðu og flestir jafnaldrar hans í Ástralíu. Hann var á fullu í skóla, keppti mikið í íþróttum, spilaði á gítar og vann við ávaxta- og grænmetissölu með skólanum.

Tommy mátti þó eiga það að hann lagði töluvert fyrir og var sparsamur á þann pening sem hann vann sér inn með skólanum. Draumurinn var að halda áfram í hlaupi, helst þannig að hann færi að taka þátt í stærri mótum. \"\"

Einn daginn í desember 2014, fékk hann vinabeiðni á Facebook. Tommy var ánægður að sjá að þar var frænka hans Kiarna, sem hann hafði ekki séð í um 10 ár. Kiarna er töluvert yngri en Tommy, eða 16 ára. Tommy fannst gaman að hún skyldi hafa samband og spurði að sjálfsögðu hvað væri að frétta.

 \"\"

Honum brá því nokkuð í brún að heyra að Kiarna var ein á báti. Og það sem verra var: hún var gengin 32 vikur með. Barnsfaðirinn var ungur maður sem sat í fangelsi og hafði verið dæmdur mjög fljótlega eftir að Kiarna komst að því að hún væri ófrísk. Það sem Kiarna hafði mestu áhyggjurnar af, var að barnið yrði tekið af henni. Hún hafði sjálf verið að velkjast um í félagslega kerfinu í nokkur ár og verið á mismunandi fósturheimilum. Í raun var nokkuð fyrirséð að barninu hennar yrði einnig komið fyrir í fóstri.

Það sem gerðist á næstu vikum, umturnaði hins vegar lífi þeirra beggja. Í fyrstu bauð Tommy Kiarna að koma og búa hjá sér. Síðan fór hann til yfirvalda og sótti um að verða lögráðamaður Kiarna. Þótt Tommy væri ekki mikið eldri en Kiarna, var hann samþykktur sem fósturforeldri. Allt þetta gerist í sömu vikunni og Kiarna fæddi heilbrigt barn. Pappírsfrágangurinn gerði það því að verkum að hinn 23 ára gamli háskólanemi, varð í raun bæði pabbi og afi á innan við viku.

En sögunni lýkur þó ekki hér... 

Í mars í fyrra, skrifar Tommy síðan um allt það sem gerst hafði á Facebook. Allt frá því að hafa fyrst fengið vinabeiðni frá Kiarna, yfir í að vera orðinn pabbi og afi á aðeins örfáum dögum. Viðtökurnar létu ekki á sér standa. Stöðufærsla Tommy flaug eins og eldur um sina um samfélagsmiðilinn og allir vildu reyna að hjálpa til.

 \"\"

Úr varð að bróðir Tommy stofnaði GoFund síðu fyrir Tommy og Kiarna. GoFund síður eru fjáröflunarsíður þar sem fólk getur lagt málefnum, fólki eða verkefnum lið. Á vefsíðunni Scribol er sagt frá því að á aðeins örfáum dögum, söfnuðust 40.000 dollarar í gegnum síðuna.

\"\"

Þegar Tommy var hins vegar spurður út í það í apríl í fyrra, hvers vegna hann hefði ákveðið að taka þetta skref, svaraði hann:

,,Í raun ætti þetta að teljast alveg sjálfsagt. Það eina sem ég gerði var að rétta frænku minni hjálparhönd.”

\"\"

  Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!