20 atriði sem þú vissir ekki um.... brjóst!

Já, nú rakst Zetan á skemmtilega grein á vefsíðunni Popsugar, þar sem listuð eru 20 atriði sem margir vita ekki um brjóst. Og Zetan verður nú hreinlega að viðurkenna að í mörgum liðum þarf hún að játa sig sigraða, þótt auðvitað séu þarna einhver atriði sem flestir þekkja. Að minnsta kosti konur!

1. Kvenbrjóst eru byggð upp af kirtilsvef og fituvef.

2. Það er talað um að það séu til 8 mismunandi tegundir af geirvörtum.

3. 6% fólks, eru með auka geirvörtur. Já, geirvörturnar eru þá þrjár!

4. Að fá fullnægingu í kynfærum, vegna örvunar með gælum á brjóstum og geirvörtur, er til. Ekki allar konur þekkja þetta, en sumar.

\"\"

5. Stærsti brjóstarhaldarinn sem er til, er í stærðinni 102ZZZ.

6. Mjög líklega er vinstra brjóstið þitt, stærra en það hægra. Þetta á einnig við, þótt þú sjáir engan mun.

7. Hárvöxtur í kringum geirvörtur er mjög algengur. Þetta er ekkert til að hafa áhyggjur af (þú ert ekki ein!).

8. Samkvæmt umdræddri grein, greinist ein af hverjum átta konum brjóstakrabbamein.

9. Þegar stúlkur byrja á blæðingum, má gera ráð fyrir að brjóstin munu stækka í um tvö ár á eftir.

\"\"

10. Stærð brjósta tekur breytingum í hverjum mánuði. Já, þú ert ekkert að ímynda þér þetta en stundum þegar brjóstarhaldararnir virðast þrengri eða víðari en þeir voru um daginn, þá getur þetta hreinlega verið vegna hormónastarfssemi líkamans, sem er að hafa smá áhrif á stærð og þunga brjóstanna.

11. Að reykja, eykur líkur á ,,lafandi” brjóstum.

\"\"

12. Í Bandaríkjunum er meðalstærð brjóstarhaldara 34DD. Reyndar tilvalið að spyrja helstu sérfræðinga landsins, Misty systur, hver hin íslenska meðalstærð er?

13. Geirvörtur geta dökknað í ásýnd á meðgöngu. Skýringin eru hormónar.

14. Í Bandaríkjunum, hafa um 5% kvenna farið í brjóstaaðgerð til að stækka eða minnka brjóstin.

15. Lögun og áferð geirvarta hefur tilgang. Þær framkalla náttúrulega olíuáferð fyrir barn á brjósti, hreinsa og verja geirvörturnar.

16. Hver geirvarta, er með um 15-20 lítil ,,op” fyrir móðurmjólkina.

\"\"

17. Liturinn á geirvörtunum er frá því að vera ljósbleikur húðlitur yfir í að vera næstum svartur.

18. Karlmenn eru með geirvörtur því í upphafi þroska fósturs, er enginn munur á fóstrum.

19. Sumir vilja meina að það geti haft áhrif á lögun brjósta, ef kona sefur mjög oft á maganum.

20. Brjóstin eru aldrei jafn ánægð og þegar brjóstarhaldarinn er farinn af á kvöldin! He, he... þetta þýðir auðvitað ekki að haldararnir séu slæmir, heldur hafa kannanir sýnt að nánast án undantekninga, segja konur það góða tilfinningu að fara úr brjóstarhaldaranum.

Já, aldeilis fróðleikur þarna á ferð!

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!