18 ára lést úr hvítblæði og svona kvöddu skólafélagarnir...

Laura Hillier bjó í Burlington í Kanada en lést þann 20.janúar síðastliðinn, eftir baráttu við hvítblæði. Laura hafði verið á biðlista fyrir  líffæragjöf í töluverðan tíma áður en hún lést. Á þessum biðtíma, ræddi Laura opinskátt um þá tilfinningu að vera sjúklingur að berjast fyrir lífi sínu, en komast ekki að vegna þess að biðlistinn væri svo langur. Laura hafði því vaktið aðdáun og athygli víða, áður en hún kvaddi.

Skólafélagarnir kvöddu Lauru með virtum og fengu leyfi til að gera það á sinn hátt. Í Bandaríkjunum og í Kanada er hefð fyrir því að þegar skóla lýkur á vorin, kveðjast skólafélagar með því að skrifa kveðjur til hvors annars í skólaárbækurnar sem allir nemendur fá. Þær kveðjur hefði Laura átt að fá í sína bók í vor, en þar sem hún er ekki lengur á meðal vina og vandamanna, fengu skólasystkini hennar leyfi til að að skrifa kveðjurnar til hennar á líkkistuna.

Kista Laura var því nokkuð skrautleg eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, en án efa hefur þetta verið í anda þess sem Laura hefði haft gaman af.

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Seventeen

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Atvinnulífinu,  Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!